Jósef Valdason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. október 2016 kl. 19:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. október 2016 kl. 19:39 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jósef Valdason fæddist 6. maí 1848 og lést 12. janúar 1887. Hann var Eyfellingur að ætt.

Kona hans var Guðrún Þorkelsdóttir. Synir þeirra voru Guðjón, Gísli og Jóhann Þ. Gísli fór til Ameríku.

Jósef var þilskipaskipstjóri. Hann stundaði meðal annars hákarlaveiðar á þilskipi. Hann drukknaði 12. janúar 1887 þegar bátur sem hann var formaður á fórst með 4 mönnum út undir Bjarnarey. Þá var Jóhann, yngsti sonur hans, á öðru ári.
Jósef var talinn með siglingafróðustu mönnum í Eyjum á sínum tíma, greindur maður og í ýmsu á undan sinni samtíð.

Jósef gekk í Lestrarfélag Vestmannaeyja í júní 1869 og var virkur í starfsemi félagsins. Þá var hann vinnumaður á Gjábakka. Hann var bókavörður Lestrarfélagsins frá 1885 til 1887. Starf sitt leysti hann af hendi með alúð og nákvæmni. Líklegt má telja, að hann hafi hvatt menn til þess, að notfæra sér þau tækifæri, er safnið veitti mönnum til þess að auka þekkingu sína, því að félögum fjölgar verulega í tíð hans. Árin 1886 og 1887 voru félagar um 40 bæði árin og útlán jukust að sama skapi, urðu stundum 40 á dag. Síðara árið sem Jósef var bókavörður urðu útlán 500 bindi, sem var hið langmesta frá stofnun félagsins.



Heimildir