Jórunn Ingimundardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. mars 2019 kl. 20:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. mars 2019 kl. 20:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|150px|''Jórunn Ingimundardóttir. '''Jórunn Ingimundardóttir''' húsfreyja, verkakona fæddist 9. október 1923 á Eystra-Íragerði á...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Jórunn Ingimundardóttir.

Jórunn Ingimundardóttir húsfreyja, verkakona fæddist 9. október 1923 á Eystra-Íragerði á Stokkseyri og lést 12. janúar 2007.
Foreldrar hennar voru Ingimundur Bernharðsson verkamaður, verkstjóri, f. 23. júlí 1893, d. 1. desember 1968, og kona hans Jónína Benedikta Eyleifsdóttir húsfreyja, f. 22. júlí 1897 í Glaumbæ á Miðnesi, Gull., d. 24. mars 1993.

Börn Jónínu og Ingimundar voru:
1. Jórunn Ingimundardóttir, f. 9. október 1923, d. 12. janúar 2007.
2. Margrét Laufey Ingimundardóttir, f. 23. nóvember 1926, d. 18. nóvember 2013.
3. Sesselja Ingimundardóttir, f. 9. ágúst 1932.
4. Bernharð Ingimundarson, f. 30. október 1935.

Börn Jónínu Benediktu Eyleifsdóttur:
5. Henning Kristinn Kjartansson versluna- og verkstæðiseigandi í Keflavík , f. 3. desember 1919, d. 8. apríl 2010.
6. Hulda Reynhlíð Jörundsdóttir húsfreyja, f. 1. nóvember 1921, d. 1. nóvember 2007.

Jórunn var með foreldrum sínum í æsku. Hún fluttist með þeim frá Stokkseyri 1924, bjó með þeim í Nýborg og á Víðivöllum, bjó með Reyni Sigtryggssyni á Höfðabrekku 1945.
Þau Gunnar Valgeir giftu sig 1947, eignuðust tvö börn, en fyrra barnið fæddist andvana.
Þau bjuggu á Höfðabrekku, en lengst á Byggðarenda, Brekastíg 15a, fluttust í Hraunbúðir 1994.
Gunnar Valgeir lést 2001 og Jórunn 2007.

I. Maður Jórunnar, (8. nóvember 1947), var Gunnar Valgeir Kristinsson verkamaður, f. 27. nóvember 1914, d. 23. september 2001.
Börn þeirra:
1. Andvana drengur, f. 5. febrúar 1948 á Höfðabrekku.
2. Jóna Ósk Gunnarsdóttir húsfreyja, f. 6. júlí 1948 á Höfðabrekku. Maður hennar er Guðmundur Þór Sigfússon.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.