Jórunn Gísladóttir (Sandprýði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Jórunn og Oddgeir.

Jórunn Gísladóttir húsfreyja fæddist 27. júní 1889 í Nöjsomhed og lést 3. nóvember 1961.
Foreldrar hennar voru Gísli Gíslason Bjarnasen smiður, beykir og verslunarmaður, f. 27. júlí 1858, d. 6. maí 1897, og kona hans Helga Guðmundsdóttir húsfreyja og ljósmóðir, f. 24. júní 1863, d. 18. mars 1931.

Börn Gísla og Helgu voru:
2. Halldóra Gísladóttir vinnukona, f. 12. desember 1885, d. 10. júní 1965.
3. Gíslína Gísladóttir, f. 12. desember 1885, d. 12. maí 1891.
4. Jón Gíslason útgerðarmaður á Ármótum, f. 4. janúar 1888 á Uppsölum, d. 20. febrúar 1970.
5. Jórunn Gísladóttir húsfreyja, f. 27. júní 1889, d. 3. nóvember 1961.
6. Sigríður Gíslína Gísladóttir, f. 13. ágúst 1891, d. 18. janúar 1892.
7. Halla Sigríður Gísladóttir, f. 29. desember 1892 í Nöjsomhed, d. 17. mars 1893.
8. Guðmundur Gíslason, f. 16. júní 1894, d. 12. nóvember 1894.
9. Karólína Vilborg Gísladóttir, f. 5. janúar 1896 í Nöjsomhed, d. 25. júlí 1896.

Barnsfaðir Helgu var Einar Jónsson sjómaður frá Káragerði í V-Landeyjum, f. 12. júní 1863, d. 27. nóvember 1941.
Barn Helgu og Einars Jónssonar úr Landeyjum var
10. Gíslína Sigríður Helga Einarsdóttir húsfreyja í Stafholti, f. 18. ágúst 1900, d. 12. ágúst 1967.

Börn Helgu og Einars Halldórssonar útgerðarmans og sjómanns í Sandprýði voru:
11. Gunnar Ármann Einarsson vélstjóri, f. 31. júlí 1902, fórst með Minervu VE-241 24. janúar 1927.
12. Vilmunda Einarsdóttir húsfreyja, f. 10. október 1908, d. 23. júní 1988.
Sonur Einars og stjúpsonur Helgu var
13. Ólafur Einarsson bátsformaður á Búðarfelli, f. 10. janúar 1897, d. 27. janúar 1928.
Fósturbarn Helgu, sonur Helgu Gísladóttur hálfsystur hennar var
14. Ketill Eyjólfsson bifreiðastjóri, útgerðarmaður, síðar framkvæmdastjóri og starfsmaður Hafnarfjarðarbæjar, f. 20. apríl 1911, d. 11. október 2006.

Jórunn var með foreldrum sínum í Nöjsomhed í bernsku. Hún missti föður sinn tæpra átta ára, en var með móður sinni í Nöjsomhed og síðan henni og Einari Halldórssyni stjúpa sínum, með þeim í Sandprýði 1908.
Einar drukknaði í Höfninni í janúar 1912. Ekkjan móðir hennar bjó áfram í Sandprýði með barnahópinn. Þar var hún með móður sinni næstu árin, en með henni voru Jón Gíslason sonur hennar og Þórunn Markúsdóttir kona hans.
Jórunn bjó í Sandprýði, er hún giftist Oddgeiri 1916, var húsfreyja á Borg 1920, á Ármótum 1930. Þar voru þau enn 1940 með kjörbarnið Guðrúnu Eyberg Ketilsdóttur, dóttur Ketils Eyjólfssonar bifreiðastjóra, sem verið hafði tökubarn hjá Helgu móður Jórunnar, en Helga og Helga Gísladóttir móðir Ketils voru hálfsystur.
Jórunn og Oddgeir bjuggu í Árdal 1944 og 1945, fluttust í Kópavog 1945 og bjuggu þar á Urðarbraut, síðar nefnt Hófgerði.
Þau Oddgeir eignuðust ekki börn en eignuðust kjörbarnið Guðrúnu Eyberg Ketilsdóttur.
Jórunn lést 1961 og Oddgeir 1972.

Maður Jórunnar, (27. maí 1916), var Oddgeir Páll Þórarinsson vélstjóri, bifreiðastjóri, formaður, vélgæslumaður á Rafstöðinni, f. 17. september 1893, d. 11. ágúst 1972.
Barn þeirra, kjörbarn, var
1. Guðrún Eyberg Ketilsdóttir húsfreyja, skrifstofukona, f. 22. ágúst 1939.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.