Jónatan Brynjúlfsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. september 2018 kl. 14:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. september 2018 kl. 14:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|200px|''Jónatan Brynjólfsson. '''Jónatan Brynjúlfsson''' frá Breiðholti, rafvirkjameistari fæddist þar 11. mars 1954 og lést 17....)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Mynd:Jónatan Brynjúlfsson.JPG
Jónatan Brynjólfsson.

Jónatan Brynjúlfsson frá Breiðholti, rafvirkjameistari fæddist þar 11. mars 1954 og lést 17. mars 1984.
Foreldrar hans voru Brynjúlfur Jónatansson rafvirkjameistari, f. 23. júní 1924 og kona hans Lilja Þorleifsdóttir húsfreyja, f. 17. júní 1922, d. 4. september 2008.

Börn Lilju og Brynjúlfs:
1. Steinunn Brynjúlfsdóttir húsfreyja, nam sálfræði, lífeindafræðingur, f. 30. september 1948, d. 19. ágúst 2008.
2. Ragnheiður Brynjúlfsdóttir húsfreyja, viðskiptafræðingur, skrifstofustjóri, f. 22. febrúar 1952, d. 4. júlí 2011.
3. Hjálmar Brynjúlfsson rafvirkjameistari, f. 22. mars 1953.
4. Jónatan Brynjúlfsson rafvirkjameistari, f. 11. mars 1954, d. 17. mars 1984.
5. Anna Brynjúlfsdóttir starfsmaður á röntgenstofu Domus Medica, f. 13. júlí 1955.
6. Rúnar Páll Brynjúlfsson skrifstofumaður, tæknimaður hjá Valitor, f. 9. ágúst 1958.
7. Brynhildur Brynjúlfsdóttir húsfreyja, starfsmaður hjá Arionbanka, f. 10. janúar 1960.
Fósturdóttir hjónanna er
8. Steinunn Jónatansdóttir hjúkrunarfræðingur, vinnur að doktorsprófi í Kanada, f. 20. september 1973. Hún er dóttir Jónatans Brynjúlfssonar og konu hans Árnýjar Sigríðar Baldvinsdóttur húsfreyja, f. 29. nóvember 1955, d. 19. maí 1979.

Jónatan var með foreldrum sínum í æsku. Hann nam rafvirkjun hjá föður sínum og við Iðnskólann, lauk sveinsprófi 1977.
Jónatan vann í Neista og hjá Volta í Reykjavík og víðar. Þau Árný Sigríður giftu sig og bjuggu í Eyjum 1972, eignuðust tvö börn.
Þau fluttu til Svíþjóðar 1974 og dvöldu þar nær tvö ár. Hann vann þar í kapalverksmiðju. Til Reykjavíkur fluttu þau um 1978 og bjuggu þar. Árný lést 1979.
Börnin tvö fóru í fóstur, - Steinunn til föðurforeldra sinna, Lilju og Brynjúlfs, en Brynjúlfur varð kjörbarn Steinunnar föðursystur sinnar og Halldórs manns hennar.
Jónatan giftist Heiðu Theodórs Kristjánsdóttur. Þau voru barnlaus.
Jónatan lést 1984.

I. Fyrri kona Jónatans var Árný Sigríður Baldvinsdóttir húsfreyja, f. 29. nóvember 1955 á Akranesi, d. 19. maí 1979. Foreldrar hennar voru Baldvin Ingi Sigurður Árnason pípulagningamaður í Reykjavík, f. 25. maí 1929 á Ísafirði og kona hans, (skildu), Guðný Soffía Valentínusdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 20. október 1935 í Reykjavík, d. 24. júlí 1969.
Börn þeirra:
1. Steinunn Jónatansdóttir hjúkrunarfræðingur, doktorsnemi í Kanada, f. 20. september 1973.
2. Brynjúlfur Jónatansson íþróttafræðingur, verslunarmaður, leiðsögumaður, f. 1. janúar 1977.

II. Síðari kona Jónatans var Heiða Theodórs Kristjánsdóttir, f. 4. mars 1956 á Brennistöðum í Flókadal, Borg. Kjörfaðir hennar var Kristján Jóhann Jónsson leikstjóri í Reykjavík, f. 8. mars 1933, og móðir hennar og kona hans var Valgerður Theodórsdóttir húsfreyja, f. 19. desember 1930 í Reykjavík, d. 24. mars 2012.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Hjálmar.
  • Íslendingabók.is.
  • Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.