Jóna Sigurlásdóttir (Reynistað)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Jóna Sigurlásdóttir.

Jóna Sigurlásdóttir frá Reynistað húsfreyja, verkakona fæddist 11. júlí 1940 og lést 10. febrúar 2018.
Foreldrar hennar voru Sigurlás Þorleifsson sjómaður, verkamaður, f. 13. ágúst 1893, d. 26. nóvember 1980, og kona hans Þuríður Vilhelmína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 31. október 1907, d. 27. júlí 1992.

Barn Þuríðar og Ólafs Jónssonar:
1. Margrét Sigurlaug Ólafsdóttir, f. 31. júlí 1926 í Djúpadal í Hvolhreppi, d. 13. apríl 2015.

Börn Þuríðar og Sigurláss:
2. Eggert Sigurlásson, f. 20. febrúar 1929 á Rafnseyri, (Kirkjuvegi 12), d. 29. ágúst 1978.
3. Þorleifur Sigurlásson, f. 16. mars 1930 á Rafnseyri, d. 31. júli 2021.
4. Anna Sigurlásdóttir, f. 18. janúar 1933 á Hálsi v. Brekastíg, d. 2. janúar 2010.
5. Kristín Sigurlásdóttir, f. 28. apríl 1935 á Reynistað, d. 27. október 2020.
6. Ásta Sigurlásdóttir, f. 5. febrúar 1937 á Reynistað, d. 29. mars 2015.
7. Ólöf Sigurlásdóttir, f. 11. janúar 1939 á Reynistað.
8. Jóna Sigurlásdóttir, f. 11. júlí 1940 á Reynistað, d. 10. febrúar 2018.
9. Gústaf Sigurlásson, f. 19. september 1941 á Reynistað.
10. Helgi Sigurlásson, f. 8. janúar 1944 á Reynistað.
11. Andvana drengur, tvíburabróðir Helga, f. 8. janúar 1944.
12. Reynir Sigurlásson, f. 6. janúar 1946 á Reynistað, d. 1. mars 1979.
13. Erna Sigurlásdóttir, f. 23. september 1947 á Reynistað, d. 19. júní 1989.
14. Margrét Sigurlásdóttir, f. 1. janúar 1949 á Reynistað.
15. Geir Sigurlásson, f. 1. apríl 1950 á Reynistað.
16. Linda Sigurlásdóttir, f. 5. mars 1955 á Reynistað.

Barn Sigurláss og fyrri konu hans Rannveigar Guðlaugar Magnúsdóttur:
1. Margrét Freyja Sigurlásdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 29. júní 1921, d. 6. mars 1960.

Börn Sigurláss og Aðalheiðar Gísladóttur:
2. Hulda Sigurlásdóttir, f. 2. apríl 1924. Hún var í Langagerði í Hvolhreppi 1930, d. 31. október 2017.
3. Baldur Sigurlásson sjómaður, f. 26. júlí 1926, d. 28. júlí 1980.

Jóna var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Haraldur giftu sig 1960, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í fyrstu á Reynistað, fluttu til Selfoss í byrjun sjöunda áratugarins og bjuggu þar síðan.
Jóna vann í fiskvinnslufyrirtækinu Straumnesi á Selfossi, síðar starfaði hún í mörg ár í Kjötvinnslunni Höfn á Selfossi.
Haraldur lést 2004 og Jóna 2018.

I. Maður Jónu, (5. júní 1960), var Haraldur Gestsson frá Hróarsholti í Villingaholtshreppi, sláturhússstjóri, verslunarstjóri, f. 8. ágúst 1938, d. 25. nóvember 2004.
Börn þeirra:
1. Gestur Haraldsson, f. 9. febrúar 1959. Kona hans Kristbjörg Óladóttir.
2. Erla Haraldsdóttir, f. 9. febrúar 1962. Maður hennar Kristinn Bjarnason.
3. Sigþór Haraldsson, f. 12. mars 1964. Barnsmóðir Margrét Harðardóttir. Fyrrum sambúðarkona Ólöf Ósk Garðarsdóttir.
4. Birgir Haraldsson, f. 11. október 1965. Kona hans Margrét Auðunsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.