Jóna Margrét Kristjánsdóttir (Heiðarbrún)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Jóna Margrét Kristjánsdóttir frá Heiðarbrún fæddist 13. janúar 1915 á Heiðarbrún og lést 2. janúar 1971.
Foreldrar hennar voru Kristján Jónsson frá Arngeirsstöðum í Fljótshlíð, trésmíðameistari, f. 13. mars 1882, d. 19. ágúst 1957, og kona hans Elín Oddsdóttir frá Ormskoti í Fljótshlíð, húsfreyja f. 27. janúar 1889, d. 19. mars 1965.

Börn Elínar og Kristjáns:
1. Óskar Kristjánsson, f. 27. janúar 1907 á Gilsbakka, d. 11. janúar 1908.
2. Óskar Kristjánsson, f. 17. apríl 1908 á Gilsbakka, d. 20. ágúst 1980.
3. Ólafur Ágúst Kristjánsson, f. 12. ágúst 1909 á Garðstöðum, d. 21. apríl 1989.
4. Oddgeir Kristjánsson, f. 16. nóvember 1911, d. 18. febrúar 1966.
5. Andvana stúlka, f. 3. október 1912 á Garðstöðum.
6. Laufey Sigríður Kristjánsdóttir, f. 30. desember 1913 á Heiðarbrún, d. 5. október 1994.
7. Jóna Margrét Kristjánsdóttir, f. 13. janúar 1915 á Heiðarbrún, d. 2. janúar 1971.
8. Friðrik Kristjánsson, f. 11. janúar 1916 á Heiðarbrún, d. 7. júlí 1916.
9. Klara Kristjánsdóttir, f. 8. júlí 1917 á Heiðarbrún, d. 23. janúar 1993.
10. Guðleif Hulda Kristjánsdóttir, f. 22. júlí 1918 á Heiðarbrún, d. 16. desember 1918.
11. Gísli Kristjánsson, f. 17. febrúar 1920 á Heiðarbrún, d. 26. febrúar 1995.
12. Kristbjörg Kristjánsdóttir, f. 8. apríl 1921 á Heiðarbrún, d. 24. nóvember 1999.
13. Haraldur Kristjánsson, f. 22. febrúar 1924 á Heiðarbrún, d. 12. september 2002.
14. Andvana drengur, f. 4. september 1927.
15. Lárus Kristjánsson, f. 28. ágúst 1929 á Heiðarbrún.
Sonur Kristjáns og hálfbróðir systkinanna var
16. Svanur Ingi Kristjánsson verslunarmaður, húsasmíðameistari, f. 9. febrúar 1922, d. 22. nóvember 2005.

Jóna Margrét var með foreldrum sínum á Heiðarbrún í æsku. Hún fluttist úr Eyjum í byrjun fjórða áratugarins.
Hún giftist Gísla Friðriki og bjó í Reykjavík, eignaðist með honum þrjú börn.
Jóna Margrét lést 1971 og Gísli Friðrik 1980.

Maður Jónu Margrétar var Gísli Friðrik Jóhannsson frá Hlíðarhúsi, múrarameistari í Reykjavík, f. 22. janúar 1906, d. 4. nóvember 1980. Jóna Margrét var síðari kona hans.
Börn þeirra:
1. Sigurður Gíslason verslunarmaður í Reykjavík, f. 8. ágúst 1943, d. 19. desember 2008. Kona hans var Friðleif Valtýsdóttir húsfreyja, f. 3. febrúar 1943.
2. Ellý Gísladóttir húsfreyja, f. 24. ágúst 1945. Maður hennar er Gísli Einarsson stýrimaður, f. 26. september 1939.
3. Jóhanna Gísladóttir húsfreyja í Eyjum, f. 14. júní 1951. Maður hennar, skilin, var Ágúst Birgisson, f. 19. september 1950. Síðari maður hennar er Guðmundur Sveinbjörnsson, f. 21. janúar 1945.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.