Jóna Kristinsdóttir (ljósmóðir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. september 2015 kl. 15:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. september 2015 kl. 15:51 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Jóna
Helga, Eiríkur, Anna, Sigurbjörg og Fríða Hjálmarsbörn

Jóna Kristinsdóttir ljósmóðir fæddist 21. des. 1895 í Steinakoti á Árskógsströnd í Eyjafirði og lézt 27. okt. 1975 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Kristinn Anton smiður, bóndi og skipstjóri á Hrafnagili og víðar, síðar á Hamri í Fljótum í Skagafirði, en síðast búsettur á Siglufirði, f. 18. júlí 1866, d. 13. júlí 1942, Ásgríms bónda á Skeiði í Fljótum Ásmundssonar og konu Ásgríms, Guðrúnar Sveinsdóttur frá Minna-Holti þar. Móðir Jónu var Helga Guðrún, f. 4. október 1864, d. 5. marz 1952, Baldvins bónda á Hrafnagili Sveinssonar og konu Baldvins, Guðrúnar Gísladóttur frá Haga á Árskógsströnd.
Jóna lauk ljósmæðraprófi við Ljósmæðraskóla Íslands 31. marz 1919.
Hún var ljósmóðir í Haganeshreppsumdæmi í Eyjafirði 1919-1921.
Ljósmóðir í Eyjum var hún frá 1921 til 20. ágúst 1949, er hún fluttist til Reykjavíkur. Í Eyjum sinnti hún jafnframt hjúkrun í heimahúsum. Í Reykjavík vann hún á sjúkrahúsinu að Sólheimum 1949-1962.
Jóna var einn af stofnfélögum Ljósmæðrafélags Íslands 2. maí 1919 og var gerð að heiðursfélaga 1959. Í Eyjum sat hún í stjórn slysavarnafélagsins Eykyndils um árabil og var virkur félagi í Kvenfélaginu Líkn. Hún var heiðruð af konum í Eyjum, er hún hætti störfum þar. Hún dvaldi á Hrafnistu í Reykjavík frá 1967.
Maki (11. ágúst 1922): Hjálmar verzlunarstjóri, f. 25. janúar 1900, d. 18. ágúst 1940, Eiríks Hjálmarssonar kennara í Eyjum og Sigurbjargar Rannveigar Pétursdóttur frá Löndum á Miðnesi í Gullbringusýslu.
Börn þeirra Hjálmars:

  1. Sigurbjörg deildarritari á Landspítalanum, f. 2. apríl 1923, gift Viggó Einarssyni flugvirkja d. 2005.
  2. Eiríkur skrifstofustjóri á Reykjalundi, f. 14. júlí 1924, d. 5. september 1971, kvæntur Hlíf Erlendsdóttur frá Keflavík.
  3. Helga Ágústa aðalgjaldkeri á skrifstofu Ríkisspítalanna, f. 2. júlí 1927, d. 7. júlí 2004, gift Árna Friðjónssyni skrifstofumanni.
  4. Anna skrifstofumaður í Hafnarfirði, f. 16. desember 1929, gift Kristleifi Einarssyni eftirlitsmanni hjá Íslenzka Álfélaginu í Straumsvík.
  5. Ása gjaldkeri hjá Áfengis- og tóbaksverzlun Ríkisins, f. 4. maí 1931, gift Hauki Ingimarssyni bifreiðasmið.
  6. Fríða Kristbjörg læknaritari á Landspítalanum, f. 4. febrúar 1935, gift (skildu) Birgi Matthíasi Indriðasyni matsveini í Reykjavík.

Myndir



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.