Jóna Friðriksdóttir (Geithálsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. febrúar 2019 kl. 21:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. febrúar 2019 kl. 21:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Jóna Friðriksdóttir (Geithálsi)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóna Friðriksdóttir frá Siglufirði, húsfreyja fæddist 4. október 1922 og lést 15. september 1999.
Foreldrar hennar voru Friðrik Ingvar Stefánsson bóndi í Nesi í Flókadal í Haganeshreppi, Skagaf., síðar verkamaður á Siglufirði, f. 13. september 1897, d. 16. nóvember 1976, og kona hans Guðný Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 17. ágúst 1895, d. 10. september 1928.
Fósturforeldrar Jónu voru Gunnlaugur Þorfinnsson skipstjóri, f. 7. ágúst 1869, d. 14. desember 1945, og kona hans Þóra Helgadóttir húsfreyja, f. 19. ágúst 1864, d. 28. mars 1943.

Jóna missti móður sína, er hún var tæpra sex ára. Hún fór þá í fóstur til Þóru og Gunnlaugs.
Þau Alfreð giftu sig 1944, eignuðust átta börn, en misstu eitt þeirra fjögurra vikna gamalt.
Þau bjuggu fyrst á Geithálsi, þá í Haga við Heimagötu og þá á Herjólfsgötu 8 til Goss.
Þau fluttust til Grindavíkur, þar sem þau gerðu út bát sinn og Sveinbjarnar bróður Alfreðs, Frigg VE 316. Þau misstu hann við Krýsuvíkurbjarg 1973.
Alfreð Hjörtur lést 1981. Jóna bjó síðast á Hólavöllum 18 í Grindavík og lést 1999.

I. Maður Jónu, (8. apríl 1944), var Alfreð Hjörtur Hjartarson vélstjóri, útgerðarmaður frá Geithálsi, f. 18. nóvember 1918 í Þorlaugargerði, d. 19. janúar 1981.
Börn þeirra:
1. Óli Þór Alfreðsson, f. 10. mars 1944 á Geithálsi.
2. Jóhanna Alfreðsdóttir, f. 7. apríl 1945 á Geithálsi.
3. Guðný Alfreðsdóttir, f. 17. janúar 1948 í Haga.
4. Alfreð Hjörtur Alfreðsson, f. 9. nóvember 1952 á Sjúkrahúsinu, d. 23. apríl 1975.
5. Friðrik Ingvar Alfreðsson, f. 30. júlí 1954 í Haga.
6. Bernódus Alfreðsson, f. 18. ágúst 1957 í Haga.
7. Einar Alfreðsson, f. 12. ágúst 1958 á Sjúkrahúsinu, d. 9. september 1958.
8. Katrín Frigg Alfreðsdóttir, f. 1. júlí 1962 á Sjúkrahúsinu.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.