Jón Kristinn Haraldsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Jón Kristinn Haraldsson húsasmíðameistari í Reykjavík fæddist 10. júní 1947.
Foreldrar hans voru Haraldur Loftsson beykir, f. 3. ágúst 1893, d. 13. júní 1965, og síðasta kona hans Sigurbjörg Hjartardóttir, f. 30. janúar 1910, d. 17. apríl 1972.
Fósturforeldrar hans voru Gísli Ragnar Sigurðsson frá Götu, útgerðarmaður, f. 16. september 1916, d. 17. maí 1995, og kona hans og hálfsystir Jóns Kristins, Sigríður Lovísa Haraldsdóttir frá Ísafirði, húsfreyja, f. 15. september 1916, d. 12. september 2001.

Jón Kristinn fór nýfæddur í fóstur til Sigríðar Lovísu hálfsystur sinnar og Gísla og ólst upp hjá þeim.
Hann lauk 4. bekkjarprófi í Gagnfræðaskólanum, iðnnámi hjá Jónasi Guðmundssyni og Iðnskólanum 1973, fékk meistarabréf í Reykjavík 1977.
Þau Guðný giftu sig 1966, eignuðust þrjú börn.
Þau fluttust til Reykjavíkur við Gosið, búa í Brekkubæ 9.

I. Kona Jóns Kristins, (25. desember 1966), er Guðný Alfreðsdóttir húsfreyja, f. 17. janúar 1948 í Haga.
Börn þeirra:
1. Sigríður Lovísa Jónsdóttir húsfreyja, starfsmaður Brimborgar, f. 27. febrúar 1968. Maður hennar var Ævar Sveinsson.
2. Freydís Jónsdóttir fatahönnuður, f. 19. september 1971, ógift.
3. Freyr Jónsson húsasmíðameistari, f. 19. september 1971. Sambýliskona hans er Halldóra Steánsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.