„Jón Jónsson (Vesturhúsum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

Lína 8: Lína 8:

Þeir, sem fórust, voru:

Þeir, sem fórust, voru:

1. [[Helgi Jónsson (Kornhól)|Helgi Jónsson]] bóndi í [[Kornhóll| Kornhól]] faðir [[Jónas Helgason (Nýjabæ)|Jóasar í Nýjabæ]], 58 ára, f. 9. júlí 1806.

1. [[Helgi Jónsson (Kornhól)|Helgi Jónsson]] bóndi í [[Kornhóll| Kornhól]] faðir [[Jónas Helgason (Nýjabæ)|Jónasar í Nýjabæ]], 58 ára, f. 9. júlí 1806.

2. [[Oddur Jónsson (Ömpuhjalli)|Oddur Jónsson]] vinnumaður í [[Ömpuhjallur|Ömpuhjalli]], 37 ára,  f. 28. febrúar 1828.

2. [[Oddur Jónsson (Ömpuhjalli)|Oddur Jónsson]] vinnumaður í [[Ömpuhjallur|Ömpuhjalli]], 37 ára,  f. 28. febrúar 1828.

3. Jón Jónsson, 47 ára, f. 1816.
3. Jón Jónsson, 47 ára, f. 1816.

Núverandi breyting frá og með 19. apríl 2017 kl. 20:17

Jón Jónsson vinnumaður á Vesturhúsum fæddist 1816 í Mýrdal og drukknaði 17. júní 1864.
Foreldrar eru ókunnir.

Jón var vinnumaður á Eyjarhólum í Mýrdal 1844, fluttist þaðan til Eyja á því ári.
Hann var fyrirvinna (ráðsmaður) hjá Elínu Guðmundsdóttur í Steinmóðshúsi 1844-1850, vinnumaður í Dölum 1851-1852, á Vesturhúsum 1853-1855, í Smiðjunni 1856, á Oddsstöðum 1857, á Búastöðum 1859-1860, á Vesturhúsum 1861-1864.
Jón drukknaði við Elliðaey 1864 ásamt tveim öðrum.
Hann var ókvæntur og barnlaus.

Þeir, sem fórust, voru:
1. Helgi Jónsson bóndi í Kornhól faðir Jónasar í Nýjabæ, 58 ára, f. 9. júlí 1806.
2. Oddur Jónsson vinnumaður í Ömpuhjalli, 37 ára, f. 28. febrúar 1828.
3. Jón Jónsson, 47 ára, f. 1816.

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.