Jón Hannesson (Nýja-Kastala)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. maí 2013 kl. 15:32 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. maí 2013 kl. 15:32 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jón Hannesson''' sjómaður í Nýja-Kastala fæddist 1820 og drukknaði 21. október 1853.<br> Foreldrar hans voru Hannes Gottsveinsson bó...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Hannesson sjómaður í Nýja-Kastala fæddist 1820 og drukknaði 21. október 1853.
Foreldrar hans voru Hannes Gottsveinsson bóndi og póstur á Brekkum í Mýrdal, f. 1796 í Eyjum, fórst á Skeiðarárjökli 19. september 1838, og kona hans Margrét húsfreyja, f. 4. apríl 1796, d. 27. janúar 1883, Jónsdóttir.

Jón var með foreldrum sínum í Hraunkoti í Landbroti 1835, hann var kominn til Eyja 1845 og var vinnumaður í Kastala þar.
Hann var tómthúsmaður í Ensomhed í Eyjum 1850 með Margréti Jónsdóttur konu sinni og barni hennar Sesselju Jónsdóttur 6 ára.
Jón drukknaði af hákarlaskipinu Najaden 21. október 1853.

Kona Jóns Hannessonar var Margrét Jónsdóttir húsfreyja í Nýja-Kastala, f. 1818.

Börn Jóns og Margrétar:
1. Hannes Jónsson, (Hannes lóðs), f. 21. nóvember 1852, d. 31. júlí 1937.
2. Jóhanna Jónsdóttir, f. 2. maí 1849. Hún fór til Vesturheims frá Fögruvöllum 1891, þá orðin ekkja eftir Guðmund Guðmundsson á Fögruvöllum, f. 1848. Með henni fór dóttir hennar Margrét Jónína Guðmundsdóttir, f. 1873.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Árni Árnason.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.