Jón Ásbjörn Jónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Jón Ásbjörn Jónsson.

Jón Ásbjörn Jónsson frá Brekkubæ á Akranesi, sjómaður, útgerðarmaður, skipstjóri, netagerðarmaður fæddist þar 30. september 1892 og lést 18. júní 1956.
Foreldrar hans voru Jón Ásbjörnsson sjómaður í Brekkubæ og Reykjavík, f. 1. ágúst 1866, d. 5. janúar 1926, og kona hans Guðný Jónsdóttir frá Fellsenda í Þingvallasveit, húsfreyja, f. 1. janúar 1865, d. 20. mars 1939.

Jón var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Jónheiður giftu sig 1913, eignuðust fimm börn. Þau voru húsfólk á Bergi á Akranesi 1913-1914 og í Hjarðarnesi 1914-1915.
Þau fluttust til Reykjavíkur og bjuggu þar 1915-1934, er þau fluttu til Eyja.
Þau bjuggu á Reynifelli við Kirkjuveg 66, fluttu til Reykjavíkur 1948 og bjuggu þar síðan.
Jón Ásbjörn lést 1956 og Jónheiður 1996.

I. Kona Jóns Ásbjörns, (16. nóvember 1913), var Jónheiður Guðbrandsdóttir frá Kleppjárnsreykjum í Reykholtsdal, Borg., húsfreyja, f. 15. janúar 1893, d. 8. júlí 1996.
Börn þeirra:
1. Holberg Jónsson skipstjóri, netagerðarmaður, f. 17. nóvember 1913, d. 16. janúar 1970. Kona hans Guðríður Amalía Magnúsdóttir.
2. Adolf Guðni Jónsson garðyrkjumaður í Hveragerði og Danmörku, f. 11. október 1918, d. 20. mars 2018. Kona hans Gurli Jónsson.
3. Guðbrandur Reykdal Jónsson netagerðarmeistari, f. 11. október 1918, d. 23. september 2010. Kona hans Sesselja Fanný Guðmundsdóttir.
4. Esther Jónsdóttir húsfreyja, handavinnukennari, forstöðukona, f. 25. október 1930. Maður hennar Theodór Guðjónsson frá Gvendarhúsi, skólastjóri.
5. Kristrún Jónsdóttir fóstra, f. 5. mars 1933.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.