Jónína Guðríður Davíðsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. febrúar 2016 kl. 11:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. febrúar 2016 kl. 11:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jónína Guðríður Davíðsdóttir''' fæddist 30. september 1863 í Nöjsomhed og mun hafa látist í Vesturheimi.<br> Foreldrar hennar voru [[Davíð Ólafsson (Kirkjubæ)|...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jónína Guðríður Davíðsdóttir fæddist 30. september 1863 í Nöjsomhed og mun hafa látist í Vesturheimi.
Foreldrar hennar voru Davíð Ólafsson (Davíð, sem datt), frá Kirkjubæ, f. 12. apríl 1836, d. 10. mars 1875, og barnsmóðir hans Guðríður Jónsdóttir vinnukona í Nöjsomhed, f. 29. janúar 1835 í Gaulverjabæjarsókn í Flóa, d. 25. apríl 1916.

Jónína Guðríður var fósturbarn hjá Guðríði Oddsdóttur og Guðmundi Guðmundssyni á Kirkjubæ 1863, en móðir hennar var vinnukona í Nöjsomhed.
Hún fluttist með móður sinni í Gaulverjabæ 1864, var tökubarn hjá sr. Páli Ingimundarsyni og Sigríði Eiríksdóttur húsfreyju í Gaulverjabæ 1870, var þjónustustúlka á Haugi þar 1880, á Stóru-Háeyri á Eyrarbakka 1890.
Jónína Guðríður fór til Vesturheims 1892 frá Kaupmannshúsi á Eyrarbakka.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.