Jóhanna Soffía Ágústa Bjarnasen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. febrúar 2016 kl. 19:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. febrúar 2016 kl. 19:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Jóhanna Soffía Ágústa Bjarnasen“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Soffía Ágústa Bjarnasen fæddist 24. ágúst 1877 í Garðinum og mun hafa látist í Danmörku.
Foreldrar hennar voru Gísli Bjarnasen verslunarstjóri, f. 30. maí 1837, d. 16. mars 1888, og kona hans Dortija Maria Andersdóttir Bjarnasen húsfreyja í Garðinum f. 3. júní 1839, d. 7. apríl 1916.

Börn Maríu og Gísla voru:
1. Johan Carl Anders Bjarnasen, f. 5. febrúar 1869, d. 4. maí 1875 „úr Diphtheria“, (barnaveiki).
2. María Sigríður Ásdís Bjarnasen, f. 12. mars 1871. Hún fluttist til Danmerkur.
3. Jóhann Gísli Anders Bjarnasen, f. 30. desember 1873. Hann fluttist til Danmerkur.
4. Rósa Jónína Petrea Bjarnasen, f. 20. ágúst 1875 í Stakkagerði. Hún fluttist til Danmerkur.
5. Jóhanna Soffía Ágústa Bjarnasen, f. 24. ágúst 1877. Hún fluttist til Danmerkur.
6. Níels Kristinn Benedikt Bjarnasen, f. 23. febrúar 1879. Hann fluttist til Danmerkur.
7. Anders Peter Asmund Bjarnasen, f. 2. febrúar 1882 í Pétursborg. Hann fluttist til Danmerkur.

Jóhanna var með fjölskyldu sinni í Garðinum í fyrstu, í Pétursborg 1881, en á Vilborgarstöðum í lok árs 1882 og þaðan fór hún með þeim til Danmerkur 1883.
Faðir hennar var þar daglaunamaður og móðir hennar hafði tekjur af saumaskap.
Gísli faðir hennar lést 1888 og í æsku var Jóhanna Sofie með móður sinni, sem hélt heimili fyrir börnin með saumaskap og útleigu húsnæðis.

Jóhanna var gift húsfreyja í Kaupmannahöfn.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.