Jóhanna Pálsdóttir (Héðinshöfða)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Pálsdóttir frá Héðinshöfða, húsfreyja fæddist þar 5. mars 1946 og lést 9. febrúar 2020.
Foreldrar hennar voru Páll Guðmundsson sjómaður, verkamaður í Héðinshöfða, f. 30. janúar 1908 í Hafnarnesi við Fáskrúðsfjörð, d. 1. maí 1955, og kona hans Þuríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 17. nóvember 1907 í Tjarnarkoti í Flóa, d. 23. ágúst 1988.

Börn Páls og Þuríðar hér:
1. Pétur Ólafur Pálsson, f. 3. nóvember 1927 í Sandgerði í Fáskrúðsfirði, d. 6. apríl 2011.
2. Valdís Viktoría Pálsdóttir, f. 14. september 1929 á Búðum í Fáskrúðsfirði, d. 3. janúar 2008.
3. Már Guðlaugur Pálsson, f. 26. maí 1931 í Sandgerði í Fáskrúðsfirði, d. 8. september 2005.
4. Óskírður Pálsson, f. 11. júní 1932 í Fáskrúðsfirði, d. 26. október 1932.
5. Brynja Jónína Pálsdóttir, f. 26. desember 1935 á Þingeyri, d. 19. nóvember 2009.
6. Kristinn Viðar Pálsson, f. 4. nóvember 1938 á Þingeyri.
7. Einar Sævar Pálsson, f. 17. október 1941 í Héðinshöfða, d. 6. mars 1989.
8. Guðmundur Pálsson, f. 3. janúar 1943 í Héðinshöfða.
9. Snjólaug Pálsdóttir, f. 15. mars 1944 í Héðinshöfða.
10. Jóhanna Pálsdóttir, f. 5. mars 1946 í Héðinshöfða, d. 9. febrúar 2020.

Jóhanna var með foreldrum sínum.
Hún varð 3. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1962.
Jóhanna vann verkakvennastörf, vann við ræstingar í Danmörku.
Þau Henry giftu sig, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu á Kirkjuvegi 20, fluttu til Danmerkur 1978, bjuggu þar í 10 ár. Þegar heim kom keyptu þau húsið Varmahlíð, bjuggu þar í nokkur ár, fluttu aftur úr landi, en heimkomin bjuggu þau við Faxastíg 8
Þau heimsóttu barn sitt í Arizona í Bandaríkjunum. Þar veiktist Henry og lést 2013.
Jóhanna lést 2020.

I. Maður Jóhönnu, (1965), var Henry Kristian Mörköre (hét öðru nafni Henry Mörköre Kristjánsson) frá Klakksvík í Færeyjum, sjómaður, farmaður, járnsmiður, f. 27. september 1939, d. 15. apríl 2013 í Scottsdale í Arizona í Bandaríkjunum.
Börn þeirra:
1. Þuríður Rafnsson, f. 28. september 1965.
2. Magnús Birgir Henrysson, f. 18. október 1968.
3. Gunný Henrysdóttir Mörköre, f. 27. janúar 1973.
4. Már Ívar Henrysson, f. 2. desember 1975.
5. Henry Baltasar Henrysson, f. 15. mars 1979 í Danmörku.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.