Jóhanna Jónsdóttir (Helgabæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. ágúst 2015 kl. 11:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. ágúst 2015 kl. 11:28 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja í Helgabæ fæddist 24. júní 1833 á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi og lést 7. mars 1864 í Helgabæ.
Foreldrar hennar voru Jón Ólafsson bóndi víða, en síðast í Langholti í Meðallandi, f. 27. júní 1794 á Undirhrauni þar, d. 17. júlí 1843 í Langholti, og síðari kona hans Margrét Jónsdóttir húsfreyja, f. 1789, líklega í Háu-Kotey í Meðallandi, d. 18. júlí 1876 í Langholti.

Jóhanna var með foreldrum sínum til 1858. Þau Halldór giftust 1857 og voru húsfólk þar 1858-1860.
Þau fluttust í Helgahjall í Eyjum með barnið Jóhann 1860, voru komin í Helgabæ síðla árs, - Jóhanna ól Gunnar á því ári, en hann lést í júlí 1861.
Hún fæddi Guðrúnu 1861.
Jóhanna ól barn 10. janúar 1864 og lést úr „guluveiki “ 7. mars 1864, og barnið dó 11. mars. Börnunum tveim var komið í fóstur austur í Meðallandi.

Maður Jóhönnu, (17. júlí 1857), var Halldór Jónsson tómthúsmaður, sjómaður, f. 14. desember 1832, fórst með þilskipinu Helgu í apríl 1867.
Börn þeirra hér:
1. Jóhann Halldórsson, f. 4. nóvember 1857 í Langholti í Meðallandi. Hann var með foreldrum sínum í Langholti 1860, fór með þeim til Eyja á því ári, fór 7 ára í Meðalland 1864, var tökubarn í Langholt þar 1864-1869, á sveit á Syðri-Steinsmýri 1869-1871. Þá fór hann að Helliskoti. Hann var vinnumaður á Minni-Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd 1880.
2. Gunnar Halldórsson, f. 6. september 1860, d. 5. júlí 1861 „af kyrkingarveiki“.
3. Guðrún Halldórsdóttir verkakona, f. 14. nóvember 1861, d. 26. júlí 1933.
4. Jón Halldórsson, f. 10. janúar 1864, d. 11. mars 1864 „af almennri ungbarnaveiki“.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.