Jóhanna Jónsdóttir (Fögruvöllum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. ágúst 2015 kl. 11:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. ágúst 2015 kl. 11:25 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja á Fögruvöllum og síðar Vestanhafs fæddist 2. maí 1849 og lést í Spanish Fork í Utah 16. mars 1916.
Foreldrar hennar voru Jón Hannesson sjómaður í Nýja-Kastala, f. 1820, drukknaði 21. október 1853, og kona hans Margrét Jónsdóttir húsfreyja, f. 1818, á lífi 1890.

Jóhanna var með ekkjunni móður sinni í Nýja-Kastala 1860 og 1870. Við manntal 1880 var hún húsfreyja á Fögruvöllum með Guðmundi og börnunum Margréti Jónínu 6 ára og Jóhanni 3 ára.
Hún missti Guðmund mann sinn 1890 og fluttist til Vesturheims 1891 frá Fögruvöllum með Margréti Jónínu 17 ára.
Hún giftist vestra Pétri Valgarðssyni bónda í Alberta í Kanada og varð þar með þriðja kona hans.

Jóhanna var alsystir Hannesar lóðs og hálfsystir, sammædd við Sesselju húsfreyju í Gvendarhúsi, konu Jóns í Gvendarhúsi.

Jóhanna var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (5. nóvember 1871) var Guðmundur Guðmundsson bóndi og sjómaður á Fögruvöllum, f. 22. nóvember 1847, d. 10. febrúar 1890.

Börn þeirra hér:
1. Margrét Guðmundsdóttir, f. 4. október 1871, d. 16. desember 1871 úr kíghósta.
2. Jón Guðmundsson, f. 24. desember 1872, d. 5. janúar 1873 „af hægðatregðu“.
3. Margrét Jónína Guðmundsdóttir, f. 5. apríl 1874. Hún fór til Vesturheims, sögð látin 20. nóvember 1891.
4. Jóhann Guðmundsson, f. 1. júlí 1877, d. 6. júlí 1884 úr heilabólgu.
5. Jóhanna Guðmundsdóttir, f. 3. nóvember 1884, d. 9. nóvember 1884 „úr krampa“, líklega ginklofi.
6. Ragnhildur Guðmundsdóttir, f. 30. desember 1885, d. 7. janúar 1886, „dó úr krampa“, líklega ginklofi.
7. Júlíana Guðmundsdóttir, f. 19. júlí 1888, d. 3. júní 1890 úr heilabólgu.

II. Síðari maður hennar, (10. janúar 1894), var Pétur Valgarðsson Ófeigssonar frá Nýjabæ Seltjarnarnesi, f. 31. desember 1842. Hann var hjá foreldrum sínum í Stekkjarkoti í Reykjavíkursókn 1845, d. 14. október 1918 í Spanish Fork í Utah. Jóhanna var 3. kona hans.
Barn þeirra var
8. John Peter Valgardsson, f. 22. janúar 1895.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.