Jóhann Sigurmundur Jónsson (Batavíu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Sigurmundur Jónsson frá Batavíu fæddist þar 21. ágúst 1887 og lést 21. október 1964 í Murray í Utah.
Foreldrar hans voru Jón Hreinsson frá Batavíu bátsformaður, síðar kaupmaður og forstjóri í Spanish Fork, f. 21. janúar 1858 í Brandshúsi, d. 7. október 1948 í Castel Gate í Utah, og fyrri kona hans Kristín Guðmundsdóttir húsfreyja frá Ömpuhjalli, f. 19. október 1854, d. 26. apríl 1910 í Spanish Fork.

Börn Kristínar og Jóns:
1. Rósa Jóhanna Sigríður Jónsdóttir, f. 15. janúar 1880 í Brandshúsi. Hún fór til Utah með foreldrum sínum, lést 17. apríl 1954. Maður hennar var Henry Franklin Hampson.
2. Jóhann Hreinn Jónsson, f. 18. júní 1882, d. 8. júlí 1882 úr mislingum.
3. Sigríður Guðmundína Jónsdóttir, f. 27. júlí 1883, d. 9. apríl 1885.
4. Jóhann Sigurmundur Jónsson, f. 21. ágúst 1887. Fór til Vesturheims með foreldrum sínum, lést 21. október 1964 í Murray í Utah.
5. Jón Kristinn Jónsson, f. 11. júlí 1891. Hann fór til Spanish Fork í Utah 1892, d. 30. nóvember 1934.

Jóhann var í Batavíu 1890, fór til Vesturheims 1892 með foreldrum sínum.
Þau Ethel giftu sig 1911, bjuggu í Spanish Fork í Utah.

I. Kona Jóhanns, (22. ágúst 1911), var Ethel Singleton húsfreyja, f. 29. júlí 1890 í Provo í Utah, d. 18. janúar 1968.
Börn ókunn.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.