Jóhann Ármann Kristjánsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2012 kl. 14:16 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2012 kl. 14:16 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Jóhann og Elín

Jóhann Ármann Kristjánsson fæddist 29. desember 1915 og lést 6. desember 2002. Árið 1948 kvæntist Jóhann Elínu Guðlaugsdóttur frá Sólbergi við Brekastíg. Þau eignuðust fjögur börn, Guðlaug, Rögnu, Guðnýju Kristínu og Jóhann Ellert.

Jóhann hóf sjómennsku ungur og stundaði hana til fjölda ára. Hann keypti meðal annars bátinn Unni en var auk þess á fleiri bátum. Eftir að hann fór í land réði hann sig sem matsvein hjá Fiskiðjunni og síðar starfaði hann hjá Rafveitu Vestmannaeyja þar til hann fór á eftirlaun árið 1990.

Jóhann var virkur félagi í Sjálfstæðisflokknum öll sín fullorðinsár og tók einnig þátt í starfi Starfsmannafélags Vestmannaeyja þar sem hann var síðar gerður að heiðursfélaga.


Heimildir

  • Reynir Guðsteinsson. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja, 2003.