Irma Pöhls Halldórsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. mars 2017 kl. 10:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. mars 2017 kl. 10:26 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Irma Pöhls Halldórsson á Steinsstöðum, húsfreyja fæddist 12. mars 1929 í Garstedt nálægt Hamborg í Þýskalandi.
Foreldrar hennar voru Hans Pöhls, f. 1903, d. 1987, og kona hans Josefine Pöhls, fædd Konstanzer 1910, d. 1984.

Irma lauk stúdentsprófi 1948. Faðir hennar var stríðsfangi í Leningrad í Rússlandi. Skólar voru yfirleitt í rúst í Þýskalandi og skólabækur ekki fáanlegar. Hún gat því ekki hafið háskólanám.
Ágúst Matthíasson forstjóri og Sigurbjörg höfðu auglýst eftir vinnukonu í Þýskalandi. Hún hafði nýlega ráðið sig, er faðir hennar losnaði úr fangelsinu.
Hún fékk far með v.b. Elliðaey frá Hamborg til Eyja 1949.

Maður Irmu, (24. desember 1950), var Hallberg Halldórsson kaupmaður, f. 4. maí 1910, d. 24. september 1982.
Börn þeirra:
1. Helga Jósefína Hallbergsdóttir, B.A-próf í íslensku og sagnfræði, M.A-próf í menningarmiðlun, forstöðumaður Byggðasafnsins í Eyjum, f. 3. júní 1952 á Steinsstöðum.
2. Ragnar Werner Hallbergsson tölvufræðingur, f. 21. maí 1957 á Steinsstöðum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.