Ingveldur Pálsdóttir (Ráðagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. desember 2019 kl. 14:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. desember 2019 kl. 14:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ingveldur Pálsdóttir (Ráðagerði)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Ingveldur Pálsdóttir frá Kerlingardal í Mýrdal, húsfreyja fæddist þar 28. maí 1900 og lést 18. nóvember 1958.
Foreldrar hennar voru Páll Bárðarson frá Hunkubökkum á Síðu, V-Skaft., bóndi í Kerlingardal, f. 27. febrúar 1870 á Hunkubökkum, d. 18. október 1922, og kona hans Oddný Andrésdóttir frá Kerlingardal, húsfreyja, f. þar 14. desember 1866.

Ingveldur var með foreldrum sínum til 1917, var vinnukona í Steinum u. Eyjafjöllum 1920, fluttist til Eyja 1925 og var vinnukona í Langholti við fæðingu Símoníu 1925.
Þau Páll giftu sig 1925, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Sjávarborg við giftingu 1925, í Ráðagerði 1927-1930.
Páll fórst 1930 með vélbátnum Ara VE 235.
Ingveldur var vinnukona og ekkja með Símoníu með sér í Varmadal 1930, en Hermann var kominn í fóstur til Andrésar móðurbróður síns og Ástu konu hans í Kerlingardal í Mýrdal. Hún var lausakona með Símoníu í Varmadal 1934, með Hermann og Símoníu á Staðarhóli 1940, með Hermanni á Brekastíg 25 1949, síðast hjá Hermanni á Vallargötu 16.
Hún lést 1958.

I. Maður Ingveldar, (19. desember 1925), var Páll Gunnlaugsson frá Uppsalakoti í Svarfaðardal í Eyjafirðir, sjómaður, f. 11. júní 1895, drukknaði 24. janúar 1930.
Börn þeirra:
1. Símonía Valgerður Pálsdóttir húsfreyja, f. 7. febrúar 1925 í Langholti, d. 25. febrúar 1878. Maður hennar Guðmundur Karl Guðmundsson.
2. Hermann Pálsson sjómaður, bifreiðastjóri, f. 23. janúar 1926, d. 12. október 1999. Kona hans Margrét Ólafsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.