Ingvald Andersen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. október 2020 kl. 13:14 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. október 2020 kl. 13:14 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Ingvald Olaf Andersen.

Ingvald Olaf Andersen matsveinn fæddist 7. maí 1923 á Siglufirði og lést 30. júní 2012 á Heilbrigðisstofnuninni.
Foreldrar hans voru August Georg Peter Andersen vélstjóri, vélsmiður á Siglufirði, f. 20. nóvember 1886 í Kaupmannahöfn, d. 1. febrúar 1970, og Kristín Kristinsdóttir Andersen, f. 15. nóvember 1885, d. 1947.

Ingvald lærði á matsveinanámskeiði í Eyjum.
Hann var sjómaður, matsveinn á skipum frá Siglufirði og Eyjum.
Þau Anna fluttu til Eyja 1952 og hann var hótelstjóri á Hótel H.B., síðan við kjötvinnslu hjá Kaupfélaginu 1955-1961. Þá varð hann matsveinn á Baldri VE til 1965.
Ingvald tók þá aftur við stjórn á Hótel H.B. og var þar til 1968, er hann tók við Hótel Berg og rak það til Goss.
Eftir Gos varð hann matsveinn um skeið á Lunda VE.
Hann var matsveinn á Keflavíkurvelli 1982 til 1985, en sneri þá til Eyja og var húsvörður í Vinnslustöðinni til 1994, er hann hætti störfum.
Þau Málfríður Anna giftu sig 1945, eignuðust þrjú börn og Ingvald fóstraði börn Önnu frá fyrra sambandi hennar. Þau bjuggu í fyrstu á Vesturvegi 29, þá á Hásteinsvegi 7, á Hótel H.B., á Landamótum, í Helgafelli við Kirkjuveg 21 (Brynjólfsbúð), á Strembugötu 23, í Görðum við Vestmannabraut 32 til Goss.
Þau keyptu Vegg eftir Gos, bjuggu þar uns þau fluttust til Keflavíkur 1982 og bjuggu þar til 1985, er þau komu aftur og Ingvald varð húsvörður í Vinnslustöðinni og þar bjuggu þau til 1994.
Anna flutti að Hraunbúðum og lést 2002. Ingvald bjó að Eyjahrauni 1 1994 til 2005, er hann flutti til Sigurveigar dóttur sinnar á Selfossi. Þar bjó hann til 2010, er hann flutti með henni til Eyja og dvaldi í Hraunbúðum.
Málfríður Anna lést 2002 og Ingvald Olaf 2012.

I. Kona Ingvalds Olafs, (27. desember 1945), var Málfríður Anna Bjarnadóttir húsfreyja, f. 15. janúar 1923 á Siglufirði, d. 28. maí 2002 í Hraunbúðum.
Börn þeirra:
1. Kristinn Ævar Andersen sjómaður í Eyjum, f. 10. júní 1947 á Túngötu 31B á Siglufirði. Fyrrum kona hans Pálína Úranusdóttir. Kona hans Aldís Atladóttir.
2. Sigurveig Margrét Andersen húsfreyja, f. 9. október 1951 á Túngötu 31B á Siglufirði . Fyrrum maður hennar Rúnar Guðmundsson. Fyrrum maður hennar Ólafur Þór Ólafsson. Maður hennar Óli Ágúst Ólafsson.
3. Ólafur Sölvi Bjarni Andersen vélstjóri, býr í Kópavogi, f. 28. nóvember 1958 á Landamótum. Kona hans Svala Dögg Þorvaldsdóttir.
Börn Önnu og fósturbörn Ingvalds Olafs:
4. Guðmunda Guðrún Björgvinsdóttir hefur unnið ýmis þjónustustörf, matráðskona, býr á Ísafirði, f. 23. júní 1942 á Hlíðarvegi 21 á Siglufirði, ógift.
5. Sigríður Ragna Björgvinsdóttir sjúklingur, öryrki, býr á Litlu-Grund í Reykjavík, f. 6. október 1943 á Siglufirði, ógift.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.