Ingigerður R. Eymundsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Ingigerður Reykjalín Eymundsdóttir.

Ingigerður Reykjalín Eymundsdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, útgerðarmaður fæddist 1. mars 1942 á Hásteinsvegi 35.
Foreldrar hennar voru Eymundur Guðmundsson sjómaður, verkamaður, f. 12. ágúst 1900, d. 26. maí 1970, og kona hans Þóra Þórarinsdóttir húsfreyja, f. 4. mars 1906, d. 5. janúar 1971.

Börn Þóru og Eymundar eru:
1. Sigrún Reykjalín Eymundsdóttir húsfreyja, f. 29. september 1940 í Ásgarði.
2. Ingigerður Reykjalín Eymundsdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 1. mars 1942 á Hásteinsvegi 35.

Ingigerður varð fjórða bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1959.
Hún lauk námi í hjúkrunarfræðum í Hjúkrunarskóla Íslands í október 1963.
Ingigerður var hjúkrunarfræðingur við lyflæknisdeild Landspítalans frá desember 1963- maí 1964, starfaði við Sjúkrahúsið í Eyjum í júní og júlí 1965. Hún var hjúkrunarfræðingur við Heilsugæslustöð Vestmannaeyja frá 1. október 1979-1999.
Ásamt Þórði Rafni manni sínum átti hún og gerði út togarann Dala-Rafn frá 1993-2014, er þau seldu útgerðina Ísfélagi Vestmannaeyja.
Þau starfa nú við ferðaiðnað og reka tvo ferðabáta, Halkion og Teistu, og tvo Ribsafaribáta, Stóra-Örn og Ölduljónið.
Þau Rafn giftu sig 1964, eignuðust þrjú börn, bjuggu í fyrstu í Víðidal, þá á Strembugötu 23, Bröttugötu 9, síðan á Fjólugötu 27 í 39 ár, en búa nú í Birkihlíð 6.

I. Maður Ingigerðar, (1. mars 1964), er Þórður Rafn Sigurðsson frá Siglufirði, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 9. janúar 1943.
Börn þeirra:
1. Íris Þórðardóttir hjúkrunarfræðingur, kennari, stjórnandi sjúkraliðabrautar Fjölbrautarskóla Suðurlands, f. 3. september 1964. Maður hennar er Valur Örn Gíslason.
2. Eyþór Þórðarson skipstjóri, f. 14. júlí 1966. Fyrsta kona hans Margrét Helgadóttir, önnur kona hans Helga Vestmann. Kona hans er Helga Björk Georgsdóttir.
3. Ægir Þórðarson tölvufræðingur hjá Landsbanka Íslands, f. 10. júní 1973.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Hjúkrunarfræðingatal I-III. Hjúkrunarfélag Íslands 1969-1992.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.