Ingibjörg Runólfsdóttir (Litla-Hvammi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Ingibjörg Runólfsdóttir húsfreyja í Litla-Hvammi, síðar í Reykjavík fæddist 13. janúar 1907 í Hausthúsum á Stokkseyri og lést 7. mars 1997.
Faðir hennar var Runólfur frá Hausthúsum á Stokkseyri, bóndi, verkamaður, f. 7. apríl 1872 í Magnúsfjósum í Sandvíkurhreppi, Árn., d. 19. júlí 1946, Jónasson bónda í Magnúsfjósum 1870, í Eyvakoti 1890, f. 28. febrúar 1838 í Kaldaðarnessókn, d. 17. mars 1894, Hannessonar bónda í Ranakoti efra á Stokkseyri 1832-1838, áður í Langholti í Flóa, f. 23. ágúst 1786, d. 2. febrúar 1839, Runólfssonar, og konu Hannesar Runólfssonar, Vilborgar húsfreyju, f. 22. maí 1808 í Vesturkoti á Skeiðum, d. 18. janúar 1860, Ingimundardóttur á Syðri-Brúnavöllum á Skeiðum Sigvaldasonar.
Móðir Runólfs Jónassonar og kona Jónasar í Magnúsfjósum var Margrét húsfreyja, f. 1839, Bjarnadóttir bónda á Stóra-Hálsi í Úlfljótsvatnssókn 1845, f. um 1794 á Hala í Ölfusi, d. 7. september 1860, Kolbeinssonar, og konu Bjarna, Málmfríðar húsfreyju, f. 1794, Ólafsdóttur bónda í Tungu í Úlfljótsvatnssókn 1801, Jónssonar og konu Ólafs, Jórunnar Einarsdóttur húsfreyju.

Móðir Ingibjargar Runólfsdóttur og kona Runólfs Jónassonar var Sólrún frá Þinghól í Hvolhreppi, húsfreyja, f. 28. maí 1867, d. 2. september 1941, Guðmundsdóttir bónda á Þinghól 1870, f. 10. september 1826, d. 8. ágúst 1907, Árnasonar bónda á Vestur-Sámsstöðum í Fljótshlíð, f. 1796, d. 26. febrúar 1845, Vigfússonar og konu Árna Vigfússonar, Guðrúnar húsfreyju, f. 14. janúar 1805, d. 28. maí 1890, Magnúsdóttur.
Móðir Sólrúnar og kona Guðmundar í Þinghól var Þóra húsfreyja, f. 31. janúar 1823, d. 20. júní 1888, Jónsdóttir bónda á Háarima í Þykkvabæ og Syðri-Rauðalæk í Holtum, f. 17. september 1789 í Tobbakoti í Þykkvabæ, d. 14. mars 1852, Hólmfastssonar, og fyrri konu Jóns Hólmfastssonar, Sigríðar húsfreyju, f. 24. apríl 1794, d. 4. desember 1839, Felixdóttur.


ctr


Sólrún Guðmundsdóttir og Runólfur Jónasson og börn þeirra.


Börn Sólrúnar og Runólfs:
1. Jónasína Þóra Runólfsdóttir húsfreyja á Jaðri, f. 2. september 1894 á Óseyrarnesi, d. 8. janúar 1977.
2. Margrét Runólfsdóttir húsfreyja á Jaðri og í Reykjavík, f. 6. júní 1896 í Ranakoti, d. 24. júlí 1981.
3. Runólfur Runólfsson skipstjóri, vélstjóri í Bræðratungu, f. 12. desember 1899 í Hausthúsum, d. 4. júní 1983.
4. Sigurmundur Runólfsson verkamaður, verkstjóri, f. 4. ágúst 1904, d. 16. febrúar 1974.
5. Ingibjörg Runólfsdóttir húsfreyja í Litla-Hvammi, f. 13. janúar 1907 í Hausthúsum, d. 7. mars 1997.

Ingibjörg var með foreldrum sínum í Hausthúsum á Stokkseyri í æsku.
Hún fluttist með þeim til Eyja 1920 og var með þeim á Geirlandi á því ári, fluttist með þeim að Bræðratungu og var með þeim til giftingar þeirra Ragnars 1929.
Þau bjuggu á Jaðri með Haraldi syni sínum 1930, í húsi Sigurmundar bróður hennar að Vestmannabraut 25 1934, í Bræðratungu við fæðingu Solveigar Þóru 1935, á Landgötu 12 við fæðingu Guðnýjar 1940, en bjuggu í Litla-Hvammi í árslok 1940 og síðan, uns þau fluttust til Reykjavíkur 1963.
Þau bjuggu í Safamýri 17 til dánardægurs.
Ragnar lést 1991 og Ingibjörg 1997.

Maður Ingibjargar, (1. júní 1929), var Ragnar Þorvaldsson verkamaður, sjómaður, formaður, netagerðarmaður, f. 24. janúar 1906, d. 3. janúar 1991.
Börn þeirra:
1. Haraldur Ragnarsson loftskeytamaður, endurskoðandi, skrifstofustjóri, f. 15. október 1929, d. 30. nóvember 2011.
2. Solveig Þóra Ragnarsdóttir húsfreyja, starfsmaður Félagsmálastofnunar í Reykjavík, f. 29. október 1935 í Bræðratungu.
3. Guðný Ragnarsdóttir húsfreyja, fulltrúi á Hagstofunni, f. 12. ágúst 1940 á Landagötu 12.
4. Sólrún Ragnarsdóttir húsfreyja á Selfossi, verslunarmaður, tryggingastarfsmaður, f. 20. júlí 1951 á Kirkjuvegi 39.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.