Ingibjörg Jónsdóttir eldri (Þorlaugargerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. mars 2015 kl. 21:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. mars 2015 kl. 21:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Ingibjörg Jónsdóttir''' eldri í Þorlaugargerði fæddist 16. júlí 1787 í Réttarhúsi í Fljótshlíð og lést 16. júní 1862 á Steinsstöðum.<br>...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ingibjörg Jónsdóttir eldri í Þorlaugargerði fæddist 16. júlí 1787 í Réttarhúsi í Fljótshlíð og lést 16. júní 1862 á Steinsstöðum.
Faðir hennar var Jón Þorkelsson bóndi í Háakoti og á Grjótá í Fljótshlíð, síðar í dvöl í Norðurgarði, f. 1750, d. 22. nóvember 1824.
Móðir Ingibjargar og kona Jóns Þorkelssonar var Þorgerður Jónsdóttir húsfreyja, f. 1748 á Giljum í Hvolhreppi, d. 13. maí 1818.

Systkini Ingibjargar í Eyjum voru:
1. Sigþrúður Jónsdóttir húsfreyja í Þorlaugargerði, f. 1785, d. 8. mars 1860.
2. Jón Jónsson bóndi í Norðurgarði, f. 1. mars 1791, d. 21. ágúst 1851.

Ingibjörg var með foreldrum sínum í Háakoti í Fljótshlíð 1801, en var niðursetningur í Múlakoti þar 1816.
Hún var vinnukona á Þórunúpi þar 1835.
Ingibjörg fluttist frá Þórunúpi til Eyja 1837, var vinnukona hjá Jóni bróður sínum í Norðurgarði í lok árs 1837 og til 1840, á Vesturhúsum 1840-1841.
Hún var komin til Sigþrúðar systur sinnar í Þorlaugargerði í lok árs 1841 og var þar næstu árin, en „til húsa“ hjá Ingibjörgu mágkonu sinni í Norðurgarði af og til. Sigþrúður dó 1860. Þá varð Ingibjörg niðursetningur í Norðurgarði hjá Ingibjörgu húsfreyju og ekkju, mágkonu sinni, en hún brá búi 1861, og þá fór Ingibjörg niðursetningur að Steinsstöðum og þar lést hún 1862.
Hún var ógift og barnlaus.


Heimildir