Ingibjörg Jónsdóttir (Bryggjum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja á Bryggjum í A-Landeyjum, ættuð úr Eyjum, fæddist 1763 og lést 19. maí 1810.
Ætt hennar er ókunn.

Ingibjörg og Guðmundur bjuggu á Krossi í A-Landeyjum 1790-1792, Bryggjum 1792 og enn 1803 og í Bakkahjáleigu 1805-1810.
Ingibjörg lést 1810.
Guðmundur kvæntist aftur og bjó á Kirkjubæ 1816 til dd. 1820.

Maður Ingibjargar var Guðmundur Ólafsson bóndi á Bryggjum, síðar á Kirkjubæ, f. 1765, d. 3. febrúar 1820.

Börn þeirra hér:
1. Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Steinshúsi, f. 1786, d. 16. febrúar 1829, gift Steini Guðmundssyni tómthúsmanni.
2. Margrét Guðmundsdóttir eldri, húsfreyja í Dölum, f. 1787, d. 14. nóvember 1848, gift fyrr Jóni Helgasyni síðar Einari Jónssyni eldri.
3. Þorbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Efri-Úlfsstaðahjáleigu í A-Landeyjum, f. 8. mars 1789.
4. Ingunn Guðmundsdóttir, f. 3. júní 1790, á lífi 1801.
5. Ingveldur Guðmundsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 11. október 1791, d. 30. júní 1841, gift Ólafi Björnssyni vinnumanni.
6. Einar Guðmundsson, f. 18. febrúar 1793, á lífi 1801.
7. Helga Guðmundsdóttir húsfreyja í Stórholti á Rangárvöllum, skírð 25. janúar 1795, d. 23. ágúst 1872.
8. Emerentíana Guðmundsdóttir, skírð 21. janúar 1797, d. 26. janúar 1797.
9. Ólafur Guðmundsson bóndi og smiður á Kirkjubæ, f. 17. janúar 1798, d. 14. júlí 1869, kvæntur fyrr Helgu Ólafsdóttur húsfreyju, síðar Guðrúnu Pálsdóttur.
10. Drengur, f. 17. janúar 1798, d. sama dag.
11. Emerentíana Guðmundsdóttir húsfreyja í Gularási í A-Landeyjum og víðar, f. 30. janúar 1799, d. 30. maí 1866. Hún var vinnukona í Kornhól í Eyjum 1822.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.