Ingibjörg Hreiðarsdóttir (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2015 kl. 21:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2015 kl. 21:35 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ingibjörg Hreiðarsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum fæddist 1762. Faðir hennar mun hafa verið Hreiðar Hreiðarsson bóndi á Kirkjubæ, f. 1721. Ætt ókunn.

Systkini Ingibjargar í Eyjum voru:
1. Árni Hreiðarsson bóndi í Gerði og á Kirkjubæ, f. 1743, d. 6. júlí 1803.
2. Guðmundur Hreiðarsson, líklega sonur Hreiðars Hreiðarssonar, f. 1746, drukknaði 16. febrúar 1793. Úr prþj.bók 1787, - guðfeðgin 1787: „Árni og Guðmundur Hreiðarssynir...“. Þeir voru guðfeðgar hjá Eyjólfi Hreiðarssyni.
3. Eyjólfur Hreiðarsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 1747, d. 13. september 1827.
4. Þórunn Hreiðarsdóttir húsfreyja, f. 1765, d. 21. mars 1821.

Ingibjörg var á Kirkjubæ 1787. Hún var ráðskona hjá Páli Guðmundssyni á Vilborgarstöðum 1801.
Bjarni maður hennar var viðriðinn Miðhúsaránið og var dæmdur til fangavistar í Rvk. Þar kynntist hann fanganum Þuríði Högnadóttur og tóku þau saman, er vistun var lokið. Óskaði Bjarni skilnaðar frá Ingibjörgu, en hún hafði átt barn með öðrum manni, meðan á afplánun Bjarna stóð. Gekk skilnaður fram.
Dánardægur hennar er óþekkt. Dánarskýrslur skortir 1813-1816.

I. Barnsfaðir Ingibjargar var Einar Guðmundsson.
Barn þeirra var
1. Guðmumdur Einarsson, f. 30. mars 1785, d. 7. apríl 1785 úr ginklofa.

II. Maður Ingibjargar (7. október 1787, skildu 16. júlí 1798): Bjarni Björnsson bóndi á Vilborgarstöðum, síðar í Kornhól og á Miðhúsum, f. 1752 í Ásgarði í Landbroti, d. 23. nóvember 1827.
Börn:
Börn Bjarna og Ingibjargar hér:
2. Guðríður Bjarnadóttir, f. 26. desember 1787, d. 4. janúar 1788 úr ginklofa.
3. Sveinn Bjarnason, f. 4. desember 1788, d. 11. desember 1788 úr ginklofa.
4. Guðríður Bjarnadóttir, f. 5. janúar 1791, d. 1. febrúar 1791 úr ginklofa.
5. Vigdís Bjarnadóttir, f. 18. febrúar 1792, d. 22. febrúar 1792, 5 daga gömul „af brjóstveiki“.

III. Barnsfaðir Ingibjargar var Páll Guðmundsson bóndi og ekkill á Vilborgarstöðum 1801, f. 1765, d. 5. ágúst 1810.
Barn þeirra hér:
6. Guðmundur Pálsson, f. 2. janúar 1798, á lífi 1801, d. líklega á árunum 1813-1816, (skýrslur vantar).

IV. Ingibjörg átti barn með Gissuri Helgasyni frá Hörgslandi á Síðu:
Barn þeirra var
7. Sigríður Gissurardóttir, f. 26. október 1801, d. 4. nóvember 1801 úr ginklofa.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.