Ingibjörg Brynjólfsdóttir (Ofanleiti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ingibjörg Brynjólfsdóttir frá Ofanleiti, húsfreyja, prestkona á Prestbakka á Síðu fæddist 26. febrúar 1871 að Ofanleiti og lést 12. maí 1920.
Faðir Ingibjargar var Brynjólfur Jónsson prestur í Eyjum, búandi í Nöjsomhed 1853-1861, síðan að Ofanleiti; alþingismaður 1859 og 1863, f. 8. september 1826 á Hofi í Álftafirði í S-Múl., d. 19. nóvember 1884 að Ofanleiti, Jónsson prests að Hofi, f. 9. nóvember 1798 að Stafafelli í Lóni, d. 16. ágúst 1843 á Hofi, Bergssonar prests og prófasts að Stafafelli 1797-1824, f. í ágúst 1772, d. 28. október 1837, Magnússonar, og konu sr. Bergs (1797), Guðrúnar húsfreyju og prestkonu, f. um 1764, d. 10. september 1849, Jónsdóttur.
Móðir sr. Brynjólfs og kona sr. Jóns Bergssonar var (29. ágúst 1824, fyrri maður hennar) Rósa húsfreyja og prestkona, f. 12. október 1802 í Eydölum í Breiðdal, S.-Múl., d. 2. júní 1856 á Þingmúla í Skriðdal á Héraði, Brynjólfsdóttir prests og prófasts í Eydölum, f. 8. september 1757, d. 30. júlí 1825, Gíslasonar, og konu sr. Brynjólfs Gíslasonar, (1785), Kristínar húsfreyju og prestkonu, f. 1761, d. 15. október 1842, Nikulásdóttur.

Móðir Ingibjargar og kona sr. Brynjólfs var Ragnheiður húsfreyja að Ofanleiti, f. 27. júní 1829, d. 11. ágúst 1921, Jónsdóttir verslunarstjóra í Kúvíkum við Reykjarfjörð á Suður-Ströndum, f. 1771 í Vík í Lóni, d. 27. júlí 1846, Salómonssonar bónda í Vík og Hraunkoti í Lóni, S-Múl., f. (1740), Jónssonar, og konu Salómons Jónssonar í Vík, Guðrúnar húsfreyju, f. 1735, Konráðsdóttur.
Móðir Ragnheiðar prestkonu að Ofanleiti og síðari kona, (31. október 1818), Jóns Salómonssonar verslunarstjóra var Sigríður húsfreyja, f. 1788, d. 6. desember 1859, Benediktsdóttir bónda á Dvergsstöðum, Grísará og Munkaþverá, f. 1759, d. 9. júní 1823, Þorvaldssonar, og konu Benedikts, Sigríðar húsfreyju, f. 1756, Sigurðardóttur.

Börn Ragnheiðar og Brynjólfs:
1. Rósa Jóhanna Sigríður Brynjólfsdóttir, f. 2. nóvember 1854 í Nöjsomhed, d. 13. janúar 1889.
2. Jónína Kristín Nikólína Brynjólfsdóttir húsfreyja á Löndum, f. 14. ágúst 1856 í Nöjsomhed, d. 16. nóvember 1906.
3. Jóhanna Kristjana Brynjólfsdóttir, f. 23. desember 1858 í Nöjsomhed, d. 13. mars 1860 úr „hósta, kvefsótt“.
4. Gísli Brynjólfsson læknir í Danmörku, f. 3. mars 1861 í Nöjsomhed, d. 18. september 1930.
5. Jóhanna Brynjólfsdóttir vinnukona á Löndum, f. 1. júlí 1863 að Ofanleiti, d. 24. júlí 1900.
6. Kristín Brynjólfsdóttir húsfreyja og prestkona á Stað í Grunnavík, f. 20. apríl 1865 að Ofanleiti, d. 19. nóvember 1918.
7. Sigríður Brynjólfsdóttir, fór til Vesturheims, f. 10. september 1868, d. 6. nóvember 1932. Maður hennar var Páll Símonarson
8. Ingibjörg Brynjólfsdóttir húsfreyja og prestkona á Prestbakka á Síðu, f. 26. febrúar 1871 að Ofanleiti, d. 12. maí 1920.

Ingibjörg var með foreldrum sínum í barnæsku, en faðir hennar lést, er hún var á fjórtánda ári.
Hún var með ekkjunni móður sinni að Ofanleiti 1890. Þær fluttu til Reykjavíkur 1891. Hún var hjá Kristínu systur sinni á Stað í Grunnavík um skeið.
Þau Magnús giftu sig 1895, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Hjaltastað í Hjaltastaðaþinghá í N.-Múl., fluttust að Prestbakka á Síðu, V-Skaft. 1896 og Ingibjörg var þar húsfreyja til æviloka 1920.

I. Maður Ingibjargar, (12. september 1895), var Magnús Björnsson (skrifaði sig Bjarnarson) prestur, prófastur, f. 26. apríl 1861 á Leysingjastöðum í S-Þing., d. 10. september 1949 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Björn Oddsson bóndi á Hofi í Vatnsdal, f. 17. september 1812, d. 30. júní 1894 og kona hans Rannveig Ingibjörg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 28. febrúar 1832, d. 14. maí 1916.
Börn þeirra:
1. Brynjólfur Magnússon sjúklingur, f. 6. ágúst 1896 á Hjaltastað, d. 20. september 1926 á sjúkrahúsi í Vordingborg í Danmörku.
2. Jóhanna Magnúsdóttir, f. 16. ágúst 1900 á Prestbakka, d. 17. október 1917.
3. Björn Magnússon prófessor í guðfræði við Háskóla Íslands, ættfræðingur, f. 17. maí 1904 á Prestbakka, d. 4. febrúar 1997. Kona hans Charlotte Kr. Jónsdóttir.
3. Ragnheiður Ingibjörg Magnúsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 26. júní 1913 á Prestbakka, d. 15. desember 2004. Maður hennar var Hermann Hákonarson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Frændgarður. Björn Magnússon. Prentsmiðjan Leiftur 1981.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.