Ingibjörg Bjarnfreðsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ingibjörg Bjarnfreðsdóttir frá Efri-Steinsmýri í Meðallandi, V-Skaft., húsfreyja fæddist þar 16. ágúst 1925 og lést 10. desember 1985.
Foreldrar hennar voru Bjarnfreður Jóhann Ingimundarson bóndi, f. 13. september 1889, d. 13. september 1964, og kona hans Ingibjörg Sigurbergsdóttir bónda á Fjósakoti í Meðallandi Einarssonar, húsfreyja, f. 3. nóvember 1893, d. 20. júlí 1945.

Börn Ingibjargar og Bjarnfreðs:
1. Björn Gísli Bjarnfreðsson bóndi í Ormskoti í Fljótshlíð, f. 24. júlí 1913, d. 30. apríl 1980. Kona hans Arnheiður Sigurðardóttir.
2. Vilborg Bjarnfreðsdóttir húsfreyja á Svanavatni við Stokkseyri, sjúkraliði, f. 19. júní 1915, d. 30. maí 1995. Maður hennar Ásmundur Siggeirsson.
3. Sigurbergur Bjarnfreðsson sjómaður, verkamaður, f. 30. september 1916, d. 8. febrúar 2002.
4. Haraldur Bjarnfreðsson sjómaður, f. 23. desember 1917, fórst 29. janúar 1940.
5. Guðjón Bjarnfreðsson garðyrkjumaður, verkamaður, kvæðamaður í Reykjavík, f. 3. mars 1919, d. 28. janúar 2009.
6. Lárus Bjarnfreðsson málari, f. 18. maí 1920, d. 23. desember 1975. Kona hans Guðrún Benjamínsdóttir.
7. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir alþingismaður, f. 8. ágúst 1921, d. 26. apríl 1994. Fyrrum maður hennar Anton Júlíus Guðjónsson. Maður hennar Runólfur Guðsteinn Þorsteinsson.
8. Jóhanna Bjarnfreðsdóttir húsfreyja í Reykjavík, bókavörður, f. 27. desember 1922, d. 4. október 2010. Maður hennar Ingólfur Finnbjörnsson.
9. Ólöf Bjarnfreðsdóttir sjúklingur, f. 24. júlí 1924, d. 29. ágúst 2019.
10. Ingibjörg Bjarnfreðsdóttir húsfreyja, f. 16. ágúst 1925, d. 10. desember 1985. Maður hennar Guðmundur Óskar Guðmundsson.
11. Eygerður Bjarnfreðsdóttir húsfreyja í Reykjavík, starfsstúlka, f. 4. janúar 1927, d. 4. apríl 1991.
12. Ármann Bjarnfreðsson bóndi, verkstjóri, fiskimatsmaður í Eyjum, f. 30. mars 1928, d. 9. júní 1988. Kona hans Kristín Óskarsdóttir.
13. Aðalsteinn Bjarnfreðsson sjómaður, verslunarmaður, f. 9. júní 1929, d. 9. apríl 2005. Kona hans Jóhanna Bára Sigurðardóttir.
14. Steindór Bjarnfreðsson sjómaður, f. 26. júní 1930, d. 28. september 2014. Kona hans Oddbjörg Sigurðardóttir.
15. Valdimar Bjarnfreðsson sjómaður, verkamaður, myndlistamaður, f. 16. febrúar 1931, d. 4. maí 2018.
16. Magnús Bjarnfreðsson blaðamaður, útvarpsþulur, f. 9. febrúar 1934, d. 30. ágúst 2012. Kona hans Guðrún Árnadóttir.
17. Sveinn Andrés Bjarnfreðsson, f. 27. ágúst 1935, d. 17. janúar 1941.
18. Ólafur Bjarnfreðsson verkamaður, f. 28. desember 1936, d. 23. október 2019. Kona hans Pisamai Phaengsrisarn.
19. Vilmundur Siggeir Bjarnfreðsson verkamaður í Reykjavík, f. 3. september 1939, d. 21. nóvember 1964.
20. Þóranna Halla Bjarnfreðsdóttir húsfreyja, þerna, f. 7. september 1942, d. 1. febrúar 1982. Maður hennar Ásgeir Hraundal.

Ingibjörg var með foreldrum sínum í æsku. Hún flutti með föður sínum til Eyja 1946, bjó með honum á Brekastíg 31, var vinnukona í Reykjavík 1948, síðar húsfreyja þar.
Þau Guðmmundur Óskar giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu síðast á Vatnsstíg 11 í Reykjavík.
Ingibjörg lést 1985 og Óskar 2004.

I. Maður Ingibjargar var Guðmundur Óskar Guðmundsson, f. 13. júlí 1927 á Hofsstöðum, d. 26. jan. 2004.
Börn þeirra:
1. Bergsteinn Ómar Óskarsson verktaki, f. 3. janúar 1953. Fyrrum konur hans Laufey Björnsdóttir og Guðrún Hallgrímsdóttir. Barnsmóðir hans Jónína Hjördís Gunnarsdóttir.
2. Sigurbjörg Guðríður Óskarsdóttir sjúklingur, f. 6. apríl 1955.
3. Þórhallur Helgi Óskarsson sjómaður, sér um fiskmarkaðinn á Tálknafirði, f. 17. desember 1958. Kona hans Jóna Guðlaug Sigursveinsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Börn Ingibjargar.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.