Ingeborg Klog

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Ingeborg Klog húsfreyja í Danmörku fæddist 23. febrúar 1767 í Eyjum og lést 6. maí 1843 í Gloslunde.
Foreldrar hennar voru Hans Jensen Klog kaupmaður í Eyjum, síðar í Danmörku, og kona hans Abelone Klog, fædd Holm, húsfreyja.

Börn Abelone og Hans Klogs hér:
1. Ingeborg Klog húsfreyja, f. 1766, d. 6. maí 1843 i Goslunde í Danmörku. Maður hennar Jorgen Borch.
2. Tómas Klog, sem varð landlæknir að Nesi við Seltjörn, fæddur 15. apríl 1768 í Eyjum og lézt 31. janúar 1824 í Nyköbing á Falstri. Hann var skipaður landlæknir 25. maí 1804 og veitt lausn 23. júní 1815. Kona hans Magdalene Sophie Klog.
3. Karen Klog, f. 1769 í Eyjum. Maður hennar Soren Jorgensen Hee.
4. Jensine Klog, f. um 1775 í Eyjum.
5. Jens verzlunarstjóri í Eyjum (1801), f. um 1778, d. 1811.
6. Anna Soffía, f. um 1778, á lífi 1860.

Ingeborg finnst ekki skráð í prestþjónustubækur í Eyjum, en nokkrar upplýsingar finnast á Google-vefnum og í upplýsingum frá Þorgilsi Jónassyni sagnfræðingi, ættuðum frá Vilborgarstöðum.
Um er að ræða manntal 1801 með nokkrum viðbótarupplýsingum. Þá var Hans Klog faðir hennar hjá henni 67 ára.

Maður hennar, (10. apríl 1793), var Jörgen Borch magister, doktor í heimspeki, sóknarprestur, f. 24. febrúar 1767 í Odense, d. 17. mars 1824.
Börn þeirra:
1. Dorthea Appolone Borch, f. 1796.
2. Andrea Borch, f. 1799.
3. Hanne Christiane Borch, f. 1801, d. 1879.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.