Ingeborg Klog

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. febrúar 2016 kl. 17:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. febrúar 2016 kl. 17:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ingeborg Klog“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Ingeborg Klog húsfreyja í Danmörku fæddist um 1766 í Eyjum, d. 6. maí 1843 í Gloslunde.
Foreldrar hennar voru Hans Jensen Klog kaupmaður í Eyjum, síðar í Danmörku, og kona hans Abelone Klog, fædd Holm, húsfreyja.

Börn Abelone og Hans Klogs hér:
1. Ingeborg Klog f. um 1766 í Eyjum, d. 6. maí 1843 í Gloslunde.
2. Tómas Klog landlæknir í Nesi við Seltjörn, f. 15. apríl 1768, d. 31. janúar 1824.
3. Jens Klog verzlunarstjóri í Eyjum 1801, f. um 1778, d. 1811.
4. Anna Soffía Klog, f. um 1778, á lífi 1860.

Ingeborg finnst ekki skráð í prestþjónustubækur í Eyjum, en nokkrar upplýsingar finnast á Google-vefnum.
Um er að ræða manntal 1801 með nokkrum viðbótarupplýsingum. Þá var Hans Klog faðir hennar hjá henni 67 ára.

Maður hennar, (10. apríl 1793), var Jörgen Borch magister, doktor í heimspeki, sóknarprestur, f. 1767, d. 1824.
Börn þeirra:
1. Dorthea Appolone Borch, f. 1796.
2. Andrea Borch, f. 1799.
3. Hanne Christiane Borch, f. 1801, d. 1879.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.