Inga Dóra Þorsteinsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. ágúst 2015 kl. 09:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. ágúst 2015 kl. 09:59 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Inga Dóra Þorsteinsdóttir sjúkraliði og húsmóðir frá Goðasteini fæddist 2. maí 1946 í Háagarði. Foreldrar hennar voru Þorsteinn Þórður Víglundsson, f. 1899 og k.h. Ingigerður Jóhannsdóttir, f. 1902.

Inga Dóra bjó í Goðasteini í Eyjum til ársins 1973, en fluttist þá til Reykjavíkur.

Hún var í Gagnfræðaskólanum 1959-1963 og lauk þaðan gagnfræðaprófi. Sjúkraliðaprófi lauk hún 1978. Hún vann á Borgarspítalanum (Grensásdeild og deild 6A) 1978-1998, Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ í Rvk 1998-2000, en síðan á Reykjalundi í Mosfellsbæ.

Maki (10. des. 1966): Helgi (Guðmundur Helgi) Guðjónsson bifvélavirkjameistari , f. 1947.
Börn: Ingigerður sjúkraþjálfari, f. 1966; Guðný Helga löggiltur endurskoðandi, f. 1968; Kristín Hrönn kennari, f. 12. febr. 1976 í Rvk.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.