Ingólfur Guðmundsson (úrsmiður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. mars 2019 kl. 15:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. mars 2019 kl. 15:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Ingólfur Arnarson Guðmundsson''' úrsmiður fæddist 27. júlí 1909 og lést 28. febrúar 1968.<br> Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ingólfur Arnarson Guðmundsson úrsmiður fæddist 27. júlí 1909 og lést 28. febrúar 1968.
Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson bifreiðastjóri, verkamaður, f. 11. apríl 1876, d. 2. október 1958, og kona hans Kristjana Rósa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 29. febrúar 1880, d. 13. nóvember 1913.
Stjúpmóðir Ingólfs var Guðríður Þórunn Ásgrímsdóttir húsfreyja, f. 19. september 1880, d. 11. maí 1954.

Bræður Ingólfs í Eyjum:
1. Ásþór Guðmundsson, f. 20. mars 1918 í Reykjavík, síðast á Vatnsleysuströnd, d. 17. nóvember 1985.
2. Kristján Rósberg Guðmundsson pípulagningamaður, f. 17. september 1919 í Reykjavík, síðast á Vatnsleysuströnd, d. 26. júlí 1975.
3. Matthías Gunnlaugur Guðmundsson húsasmíðameistari, f. 19. nóvember 1920 í Reykjavík, síðast í Keflavík, d. 26. október 1997.

Ingólfur var með foreldrum sínum í frumbernsku, en hann missti móður sína 1913.
Hann var með foreldrum sínum í Bjarnaborg í Reykjavík 1910, með föður sínum og Guðríði Þórunni Ásgrímsdóttur síðari konu hans á Rauðarárstíg 5b 1920.
Hann fluttist til Eyja með föður sínum, stjúpmóður og þrem systkinum 1921.
Ingólfur nam úrsmíði hjá Guðlaugi Gíslasyni úrsmið. Hann var úrsmíðanemi og leigjandi á Hásteinsvegi 8 í Eyjum 1930, skósmíðanemi og leigjandi þar 1934.
Ingólfur rak eigið fyrirtæki í úrsmiðaþjónustu.
Þau Kristjana eignuðust Guðmund 1939, giftu sig 1940, eignuðust sjö börn, en misstu eitt þeirra þriggja vikna gamalt 1953.
Þau bjuggu í Björk, Vestmannabraut 47 1940, voru komin á Hásteinsveg 48 1945 og bjuggu þar síðan.
I. Kona Ingólfs, (25. apríl 1940), var Kristjana Sigurðardóttir húsfreyja, f. 5. september 1915 á Seyðisfirði, d. 11. apríl 2016 í Hraunbúðum.
Börn þeirra:
1. Guðmundur Ingólfsson trésmiður í Keflavík, f. 8. október 1939. Kona hans er Karólína Ólafsdóttir.
2. Arnar Valur Ingólfsson járnsmíðameistari, verkstjóri, Hrauntúni 14, f. 14. janúar 1942 á Vestmannabraut 47. Kona hans er Margrét Steinunn Jónsdóttir.
3. Sigurbjörn Ingólfsson, Hólagötu 6, sjómaður, starfsmaður Áhaldahússins, f. 8. maí 1946 á Hásteinsvegi 48. Sambýliskona hans var Ragnhildur Sigurjónsdóttir.
4. Guðbjörg Eygló Ingólfsdóttir, Faxastíg 27, húsfreyja, f. 28. apríl 1949 á Hásteinsvegi 48. Maður hennar er Ólafur M. Aðalsteinsson.
5. Sigurrós Ingólfsdóttir, Búastaðabraut 12, f. 25. nóvember 1950 á Hásteinsvegi 48. Maður hennar er Tómas Njáll Pálsson.
6. Drengur, f. 12. nóvember 1953 á Hásteinsvegi 48, d. 5. desember 1953.
7. Einir Ingólfsson, Brimhólabraut 1, nú í Hafnarfirði, sjómaður, f. 22. desember 1954 á Sjúkrahúsinu. Kona hans var Sigríður Þórhallsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Gullsmiðatal 1991. Félag íslenskra gullsmiða. Ritstjóri Stefán B. Stefánsson o.fl.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 20. apríl 2016. Minning Kristjönu.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.