Höfðavík

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2006 kl. 09:28 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2006 kl. 09:28 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Höfðavík, eða Víkin eins og hún er yfirleitt kölluð, er stór vík norðan við Stórhöfða. Norðan við Víkina er Klauf, og austan í víkinni er sandströnd sem er hluti af Aur.

Togspilið

Þann 3. mars 1946, strandaði togarinn Star of the East frá Aberdeen á blindskeri sem er í miðri Höfðavík. Þrettán manna áhöfn var bjargað um borð í varðbátinn Óðin og þeir fluttir í land í Eyjum. Veður var allhvasst og braut sjór á skipinu á strandstað og liðaðist skipið fljótlega í sundur þar sem það lá fyrir opnu hafi.

Um 1950 var ketillinn úr skipinu hirtur og spilið nokkrum árum síðar, en það komst aldrei lengra en upp í fjöruna, austan megin í Víkinni, þar sem það er enn í dag, hálfri öld síðar, órjúfanlegur hluti fjörunnar og eitt af kennileitum í náttúru Vestmannaeyja.