Höfðahellir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 09:05 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 09:05 eftir Smari (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Í Stórhöfða er Stórhöfðahellir, en hann er einnig kallaður Höfðahellir, stendur beint austan frá vitanum og opnast út í hamarinn. Inngangur hans er rétt hjá brúninni. Hellirinn er nokkuð langur og er með hvelfingu. Á nokkrum stöðum er hægt að standa uppréttur. Gólfið í honum er slétt en þó er á nokkrum stöðum sprungur. Einstaka dropasteinar eru í hellinum.

Hellirinn er vel manngengur, þó nokkuð hafi hrunið ofan í hann á seinni árum. Hann opnast út í svokallaðan Súlukrók, til suðausturs er Hellutá og norðausturs Álkustallur.


Heimildir

Ársbók: F.Í 1948 : bls 129-134