Hvítingar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. nóvember 2005 kl. 09:51 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. nóvember 2005 kl. 09:51 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Mynd tekin frá Hvítingum, horft til norðurs yfir þáverandi Sjúkrahús Vestmannaeyja.

Hvítingar voru tveir stórir, sérkennilegir steinar sunnan við túngarða Stakkagerðis. Þeir hölluðu þannig að þeir voru hæstir í norðri, um tveir metrar á hæð, en hölluðu niðurávið til suðurs. Steinarnir voru gráleitir með mjög áberandi hvítum blettum sem nafn þeirra er dregið af.

Á 16. öld var þinghald Vestmannaeyja flutt að Hvítingum frá Vilborgarstöðum, en í upphafi 19. aldar var húsið Hvítingar byggt þar. Minnst er á húsið í manntalinu 1859 og stóð það skammt suður af Stakkagerðistúni.

Hvítingatraðir var gata sem lá meðfram suðurhlið Stakkagerðistúns eftir Hvítingum (steinunum) og Hvítingum (húsinu), en sú gata heitir Hvítingavegur í dag.