Hvoll (við Urðaveg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júlí 2007 kl. 11:40 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júlí 2007 kl. 11:40 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáleiðr.)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir önnur hús sem hafa borið nafnið „Hvoll


Hvoll að Urðarvegi 17

Húsið Hvoll stóð við Urðaveg 17a. Það var einnig nefnt Nýi-Hvoll.

Þegar gaus bjuggu á efri hæðinni á Hvoli Guðjón Kristinsson skipstjóri, frá Miðhúsum en oftast kenndur við Hvol, og kona hans Kristín Ólafsdóttir og börn þeirra Bryndís, Hrefna, Hörður og Ólafur , sem öll eru kennd við æskuheimili sitt. Á neðri hæðinni bjuggu Kolbeinn O. Sigurjónsson, einnig oft kenndur við Hvol, og kona hans Sigríður Sigurðardóttir frá Vatnsdal og börn þeirra Anna Ísfold, Guðrún Fjóla, Ingibjörg S, Elva S og Marý Ólöf.

Húsið nr. 17b við Urðaveg, sem var bakhús, var nefnt Litli-Hvoll, og gekk einnig undir nafninu Hvoll. Þegar gaus bjuggu þar Sigurður N Jóhansen og kona hans Bryndís Garðarsdóttir, börn þeirra Páll, Andrés Brynjar og Unnur Ósk.

Þessi hús fóru undir hraun í gosinu 1973.