Hulda Reynhlíð Jörundsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. mars 2019 kl. 18:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. mars 2019 kl. 18:39 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Hulda Reynhlíð Jörundsdóttir.

Hulda Reynhlíð Jörundsdóttir húsfreyja fæddist 1. nóvember 1921 í Reykjavík og lést 1. nóvember 2007 þar.
Faðir Huldu var Jörundur bátsformaður í Jóhannesarhúsi í Hrísey, f. 17. október 1896, d. 1. júní 1952, Jóhannesson bónda á Birnunesi á Árskógsströnd 1910, útgerðarmaður, kaupmaður og hafnsögumaður í Hrísey, f. 24. júní 1858, d. 20. ágúst 1946, Jörundssonar (Hákarla-Jörundar) hákarlaformanns og útvegsbónda í Hrísey, f. 25. desember 1826, d. 1. október 1888, Jónssonar, og konu Hákarla-Jörundar, Svanhildar húsfreyju, f. 17. júlí 1834, d. 10. ágúst 1875, Jónasdóttur.
Móðir Jörundar og kona Jóhannesar á Birnunesi 1901 var Jórunn húsfreyja á Birnunesi og í Hrísey, f. 30. maí 1864, d. 6. september 1943, Jóhannsdóttir bónda, hreppstjóra og skipstjóra á Ólafsfirði og kennara í Stærri-Árskógi, smáskammtalæknis, f. 13. nóvember 1829 á Bakka í Svarfaðardal, d. 17. júlí 1904, Magnússonar, og konu Jóhanns í Stærri- Árskógi, (5. október 1855), Freygerðar húsfreyju, f. 27. júlí 1833, d. 30. apríl 1919, Árnadóttur.

Móðir Huldu Reynhlíðar Jörundsdóttur og barnsmóðir Jörundar var Jónína Benedikta Eyleifsdóttir, f. 22. júlí 1897, d. 24. mars 1993, síðar húsfreyja og kona Ingimundar Bernharðssonar, f. 23. júlí 1893, d. 1. desember 1968.
Ingimundur var fósturfaðir hennar frá tveggja ára aldri.
Hulda ólst upp í Eyjum frá árinu 1923. Hún var með móður sinni og fósturföður í Nýborg 1930.
Hún var húsfreyja og afgreiðslukona hjá Mjólkursamsölunni í Eyjum, síðar skrifstofumaður í Reykjavík.
Hulda var tvígift:
I. Fyrri maður hennar, (1. nóvember 1941), var Sigurður Ingiberg Guðlaugsson, f. 6. janúar 1919, d. 5. maí 1957.
Börn Sigurðar og Huldu:
1. Sigurður Birgir, fæddur 30. október 1940, dáin 27. mars 2003.
2. Björg, fædd 14. apríl 1945.
3. Inga Jóna, fædd 30. maí 1946.
4. Guðlaugur, fæddur 27. júlí 1950.
II. Síðari maður Huldu var Leifur Þorbjörnsson Guðjónssonar frá Kirkjubæ, f. 21. mars 1921, d. 12. apríl 2000. Þau voru barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Morgunblaðið 9. nóvember 2007. Minning.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.