Hulda Hallgrímsdóttir (Bjarma)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. desember 2016 kl. 19:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. desember 2016 kl. 19:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Hulda Hallgrímsdóttir''' frá Skálanesi í Seyðisfirði, húsfreyja fæddist 28. september 1919 á Bæjarstæði á Seyðisfirði og lést 15. desember 1988.<br> Foreldrar hen...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hulda Hallgrímsdóttir frá Skálanesi í Seyðisfirði, húsfreyja fæddist 28. september 1919 á Bæjarstæði á Seyðisfirði og lést 15. desember 1988.
Foreldrar hennar voru Hallgrímur Ólason verkamaður, útgerðarmaður, f. 22. janúar 1889, d. 9. júní 1965, og kona hans María Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 26. janúar 1891, d. 13. apríl 1969.

Hulda var með foreldrum sínum í Skálanesi, fluttist til Eyja um 1941.
Þau Gústaf eignuðust Hrefnu 1942 og Lindu 1943, báðar í Birtingarholti, giftu sig 1944 og bjuggu þá enn í Birtingarholti, en í Steinholti 1946 við fæðingu Friðrikku Ingibjargar, á Boðaslóð 3 1948 við fæðingu Maríu.
Þau voru komin í Bjarma 1949.
Gústaf var vélstjóri á vs. Helga VE- 333, er hann fórst á Faxaskeri 7. janúar 1950.
Hulda bjó áfram í Bjarma, bjó þar með Þórarni 1959, en á Hásteinsvegi 7 1963 og fram að Gosi.
Þau fluttust til Reykjavíkur í Gosinu, til Grindavíkur og þaðan til Eyja, þegar fært varð, bjuggu á Foldahrauni 41.
Hulda lést 1988. Þórarinn fluttist til Siglufjarðar, en síðan í Mosfellsbæ. Hann lést 1996.

Hulda var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (26. desember 1944), var Gústaf Runólfsson bifreiðastjóri, vélstjóri, f. 26. maí 1922, drukknaði 7. janúar 1950.
Börn þeirra:
1. Hrefna Gústafsdóttir, f. 12. mars 1942 í Birtingarholti, síðast í Eyjum, d. 10. desember 1971.
2. Linda Gústafsdóttir, f. 31. júlí 1943 í Birtingarholti.
3. Friðrikka Ingibjörg Gústafsdóttir, f. 24. ágúst 1946 í Steinholti.
4. María Gústafsdóttir, f. 11. september 1948 á Boðaslóð 3.

II. Síðari maður Huldu, (26. desember 1961), var Þórarinn Ágúst Jónsson sjómaður, f. 26. desember 1930, d. 17. júní 1996.
Börn þeirra:
5. Sigríður Ágústa Þórarinsdóttir, f. 30. maí 1958, d. 12. ágúst 2015.
6. Sigrún Ólafía Þórarinsdóttir, f. 25. júní 1959.
7. Gústaf Adólf Þórarinsson, f. 13. maí 1963.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.