Hreinn Sæmundsson (Frydendal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. ágúst 2015 kl. 18:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. ágúst 2015 kl. 18:48 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hreinn Sæmundsson vinnumaður í Frydendal fæddist 14. mars 1829 og drukknaði 1. október 1850.
Foreldrar hans voru Sæmundur Símonarson bóndi á Kirkjulandi í A-Landeyjum, f. í október 1801 á Skíðbakka í A-Landeyjum, d. 17. júlí 1846 á Kirkjulandi, og fyrri kona hans Margrét Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 2. október 1796, d. 26. ágúst 1843.

Föðurbróðir Hreins var Jón Símonarson bóndi í Gvendarhúsi, faðir Jóns í Gvendarhúsi Systkini Hreins í Eyjum voru:
1. Hannes Sæmundsson vinnumaður í Nýjabæ, f. 3. febrúar 1832, d. 27. júlí 1858.
2. Margrét Sæmundsdóttir húsfreyja á Steinsstöðum, f. 1. október 1835, d. 12. mars 1880.
3. Jónas Sæmundsson sjómaður, f. 31. ágúst 1841. Hann fluttist til Danmerkur 1867.

Hreinn kom til Eyja 1847, þá 15 ára vinnumaður, var vinnuhjú í Frydendal 1848, 1849, vinnumaður í Frydendal 1850.
Hann drukknaði 1850 við Landeyjasand ásamt 7 öðrum.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.