Hrefna Sighvatsdóttir (Ási)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hrefna Sighvatsdóttir frá Ási við Kirkjuveg 49, húsfreyja, verslunarmaður fæddist þar 23. júlí 1939.
Foreldrar hennar voru Sighvatur Bjarnason frá Stokkseyri, skipstjóri, útgerðarmaður, forstjóri, f. 27. október 1903 í Útgörðum þar, d. 15. nóvember 1975, og kona hans Guðmunda Torfadóttir frá Hnífsdal, húsfreyja, f. þar 22. apríl 1905, d. 27. september 1983.

Börn Guðmundu fyrir hjónaband:
1. Kristjana Valgerður Jónsdóttir, f. 2. október 1926 á Ísafirði, d. 20. október 2011.
2. Guðríður Gilsdóttir Kinloch, f. 31. desember 1927 í Reykjavík, d. 19. maí 2011.
3. Haukur Guðmundsson, f. 25. október 1929 í Reykjavík, d. 3. september 1991.

Börn Guðmundu og Sighvats:
4. Margrét Sighvatsdóttir, f. 28. júlí 1931 í Ási, d. 15. nóvemer 2009. Maður hennar Friðrik Erlendur Ólafsson.
5. Bjarni Sighvatsson, f. 2. desember 1932 í Ási, d. 9. október 2018. Kona hans Dóra Guðlaugsdóttir
6. Sigurður Arnar Sighvatsson, f. 6. ágúst 1934 í Ási. Kona hans Soffía Björnsdóttir.
7. Guðbjartur Richarð Sighvatsson, f. 10. janúar 1937 í Ási.
8. Hrefna Sighvatsdóttir, f. 23. júlí 1939 í Ási. Fyrrum maður hennar Magnús Stefánsson. Maður hennar Jón Sigurður Óskarsson.
9. Sighvatur Sighvatsson, f. 30. júní 1942 í Ási, d. 26. mars 1955.
10. Magnús Torfi Sighvatsson, f. 19. ágúst 1944 í Ási, d. 20. mars 2002.
11. Jón Sighvatsson, f. 25. maí 1946 í Ási. Barnsmóðir hans Eygló Kjartansdóttir. Fyrrum kona hans Sigurborg Erna Jónsdóttir. Kona hans Guðríður Ásta Halldórsdóttir.

Hrefna var með foreldrum sínum.
Hún varð 3. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1955.
Hrefna vann verslunarstörf.
Þau Magnús giftu sig 1961, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Ási við Kirkjuveg 49 og við Hraunslóð 1. Þau skildu.
Þau Jón Sigurður giftu sig 1968, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Hátúni 14
Jón Sigurður lést 2008.
Hrefna býr við Vesturveg 5.

I. Maður Hrefnu, (21. október 1961, skildu), var Magnús Stefánsson sjómaður, stýrimaður, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 4. október 1937, d. 13. desember 2007.
Börn þeirra:
1. Jóhanna Magnúsdóttir, f. 10. desember 1956. Maður hennar Steingrímur Benediktsson.
2. Guðmunda Magnúsdóttir, f. 30. júlí 1961. Maður hennar Ólafur Bragason.
3. Hrafnhildur Magnúsdóttir, f. 20. desember 1965. Maður hennar Guðmundur Hárlaugsson.

II. Maður Hrefnu, (24. nóvember 1968), var Jón Sigurður Óskarsson frá Svefneyjum í Breiðafirði, lögfræðingur, fulltrúi, f. 15. maí 1936, d. 29. september 2008.
Börn þeirra:
1. Anna Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 10. maí 1968, d. 25. mars 2008. Maður hennar Karl Björnsson.
2. Orri Jónsson vélstjóri, f. 13. desember 1974. Kona hans Hulda Birgisdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.