Hrafn Pálsson (Herðubreið)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Hrafn Pálsson.

Hrafn Pálsson sjómaður, stýrimaður, verkamaður fæddist 10. mars 1935 í Þingholti og lést 22. maí 1986.
Foreldrar hans voru Páll Þorbjörnsson skipstjóri, kaupfélagsstjóri, alþingismaður, forstjóri, kaupmaður, f. 7. október 1906, d. 20. febrúar 1975, og kona hans Bjarnheiður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 7. nóvember 1919, d. 10. ágúst 1976.

Börn Bjarnheiðar og Páls:
1. Guðrún Pálsdóttir sjúkraliði, f. 23. september 1933 á Brekku, d. 25. ágúst 2013. Maður hennar Þröstur Sigtryggsson, látinn.
2. Hrafn Pálsson sjómaður stýrimaður, f. 10. mars 1935 í Þingholti, d. 22. maí 1986. Barnsmæður hans Alda Thoroddsen, Fanney Sigurbjörg Jóhannsdóttir, Emilía Ósk Guðjónsdóttir og Hjördís Gréta Gunnarsdóttir. Kona hans Johanna Nielsen. Sambúðarkona hans Dóra Aradóttir.
3. Guðbjörg Pálsdóttir sjúkraliði, f. 20. júlí 1937 á Herðubreið. Fyrrum maður hennar Sturla Friðrik Þorgeirsson.
4. Arndís Pálsdóttir húsfreyja, fiskiðnaðarkona, f. 29. september 1938 á Herðubreið, d. 20. apríl 2009. Maður hennar Georg Stanley Aðalsteinsson, látinn.
5. Þorbjörn Þórðarson Pálsson framkvæmdastjóri, löggiltur fasteignasali, f. 3. maí 1951. Kona hans Ester Jóhanna Antonsdóttir.

Hrafn var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lauk Farmannadeild Stýrimannaskólans í Reykjavík 1957.
Hrafn var sjómaður, á togurum, fiskibátum, varðskipum og var verkamaður í landi. Hann vann stöku sinnum í Eyjum, en bjó lengst í Reykjavík.
Hann eignaðist barn með Öldu og Fanneyju Sigurbjörgu 1955, með Emilíu 1957.
Þau Jonna giftu sig eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Hrafn eignaðist barn með Hjördísi Grétu 1972.
Síðustu árin bjó hann með Dóru.
Hrafn lést 1986.

I. Barnsmóðir Hrafns er Alda Thoroddsen, f. 14. apríl 1927.
Barn þeirra:
1. Védís Thoroddsen húsfreyja, matráðskona, f. 29. janúar 1955. Maður hennar Gunnar Karl Garðarsson.

II. Barnsmóðir Hrafns er Fanney Sigurbjörg Jóhannsdóttir, f. 14. júlí 1931 á Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði.
Barn þeirra:
2. Sigrún Hrafnsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Reykjavík, f. 20. september 1955. Maður hennar Einar Matthías Þórarinsson.

III. Barnsmóðir Hrafns er Emilía Ósk Guðjónsdóttir, f. 3. mars 1935.
Barn þeirra:
3. Kolbrún Ögmundsdóttir (Hrafnsdóttir) félagsráðgjafi, f. 21. mars 1957. Maður hennar Jón Þór Eyjólfsson.

IV. Kona Hrafns, (skildu), var Jonna Nielsen, færeyskrar ættar, f. 5. júlí 1941, látin.
Börn þeirra:
4. Jóhanna Hrönn Hrafnsdóttir (Hrönn Thorn), húsfreyja í Danmörku, f. 19. október 1961.
5. Guðmundur Berg Hrafnsson (Berg Rassmussen), sjómaður í Færeyjum, f. 19. ágúst 1963, d. 28. september 2010.

4. Barnsmóðir Hrafns var Hjördís Gréta Gunnarsdóttir, f. 20. júlí 1944, d. 19. júní 2003.
Barn þeirra, síðar ættleitt:
5. Grétar Jón Elfarsson vélvirki, f. 7. apríl 1972.

VI. Sambúðarkona Hrafns er Dóra Aradóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.