Hof

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 10:27 eftir Simmi (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 10:27 eftir Simmi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Hof var byggt árið 1906 af Magnúsi Jónssyni sýslumanni og stóð við Landagötu 26. Var þetta timburhús ofan á hlöðnum kjallaragrunni. Voru veggir kjallarans sérlega þykkir og var mikil steypa á milli steinanna. Yfirsmiður var Magnús Ísleifsson í London og var þetta fyrsta húsið sem Magnús sá um smíði á.

Frá upphafi var Hof aðsetur sýslumanns en eftir að Vestmannaeyjar fengu kaupstaðarréttindi 1918 var Hof aðsetur bæjarfógeta til ársins 1924, en þá var aðsetur bæjarfógeta flutt að Tindastóli.

Eftir að aðsetur bæjarfógeta var flutt úr Hofi keypti Þorlákur Sverrisson húsið ásamt konu sinni Sigríði Jónsdóttur. Höfðu þau hjón búskap og voru með tún austan megin við hof. Seinna á túninu voru Verkamannabústaðirnir og íbúðarhús á Austurhlíð reist. Bjó Þorlákur að hofi til dándægurs árið 1943 og bjó kona hans þar ásamt tveimur dætrum þeirra til ársins 1960, þegar Birgir R. Ólafsson keypti það.

Þegar Karl Einarsson sýslumaður bjó í Hofi var sýsluskrifari hans hið merka skáld Magnús Stefánsson (Örn Arnarson), og bjó hann í norðurherbergi á Hofi. Yfir þeim tíma sem hann var í Eyjum orti hann mörg af sínum ágæstustu kvæðum.

Húsið fór undir hraun í gosinu 1973.