Hlynur Stefánsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Íþróttamaður ársins. Hlynur og Unnur.

Hlynur Stefánsson er fæddur 8. október 1964. Móðir hans er Friðrikka Svavarsdóttir og fósturfaðir Hrafn Oddsson. Systkini hans eru Björgúlfur og Lind. Hlynur er kvæntur Unni Sigmarsdóttur og eiga þau þrjú börn, Birki, Kristrúnu Ósk og Rakel. Þau búa að Hrauntúni.

Hlynur spilaði knattspyrnu með ÍBV í fjöldamörg ár og gerðist seinna atvinnumaður með Örebro í Svíþjóð. Hefur Hlynur hlotið ýmsar viðurkenningar á ferli sínum. Hann var meðal annars valinn prúðasti leikmaður efstu deildar árið 1996 og besti leikmaður efstu deildar árið 2000. Hann lék auk þess leiki með landsliði Íslands í knattspyrnu. Hlynur var valinn íþróttamaður Vestmanneyja árið 1997 og 1998.

Hlynur er stofnfélagi Round Table 11 í Vestmannaeyjum. Hlynur starfar sem umboðsmaður Vífilfells í Vestmannaeyjum.