Hjörtur Gunnlaugsson (Reynifelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. mars 2019 kl. 14:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. mars 2019 kl. 14:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Hjörtur Gunnlaugsson''' á Reynifelli, sjómaður fæddist 9. júní 1906 í Uppsalakoti í Svarfaðardal og lét 1. janúar 1968.<br> Foreldrar hans voru Gunnlaugur Pálsson...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hjörtur Gunnlaugsson á Reynifelli, sjómaður fæddist 9. júní 1906 í Uppsalakoti í Svarfaðardal og lét 1. janúar 1968.
Foreldrar hans voru Gunnlaugur Pálsson bóndi í Uppsalakoti, síðar á Búðum í Fáskrúðsfirði, f. 14. janúar 1867 í Urðasókn í Svarfaðardal, d. 28. ágúst 1914, og kona hans Una Guðríður Rósamunda Jóhannesdóttir húsfreyja, síðar á Reynifelli og í Stakkholti, f. 19. október 1869 á Kvíslarhóli á Tjörnesi, d. 24. mars 1939.

Systir Hjartar í Eyjum var
1. Margrét Gunnlaugsdóttir húsfreyja í Hruna, f. 6. janúar 1898 í Uppsalakoti, d. 19. júlí 1965.

Hjörtur var með foreldrum sínum í Uppsalakoti í æsku, fluttist með þeim að Búðum í Fáskrúðsfirði 1912.
Faðir hans lést 1914.
Hjörtur fylgdi móður sinni til Eyja 1921, stundaði sjómennsku.
Hann var á Reynifelli með móður sinni 1930 og í Stakkholti 1934.
Hjörtur var sjómaður í Stakkholti 1940.
Hann fluttist til Stykkishólms, var þar matsveinn og netamaður.
Hann lést 1968.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.