Hjálmrún Hjálmarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Hjálmrún Hjálmarsdóttir vinnukona, síðar ráðskona í Reykjavík fæddist 16. mars 1878 í Efri-Rotum u. Eyjafjöllum og lést 9. mars 1950.
Faðir hennar var Hjálmar bóndi á Ketilsstöðum í Mýrdal og í Efri-Rotum undir Eyjafjöllum, f. 17. júlí 1829, d. 31. ágúst 1903, Eiríksson bónda á Ketilsstöðum, f. 1795 á Leirum u. Eyjafjöllum, Jónssonar bónda á Hrútafelli þar, f. 1769 í Pétursey í Mýrdal, d. 30. apríl 1834 á Hrútafelli, Eiríkssonar, og konu Jóns á Hrútafelli, Sigríðar húsfreyju, f. 1769 á Raufarfelli þar, Bjarnadóttur.

Móðir Hjálmars á Ketilsstöðum og síðari kona Eiríks bónda þar var Elín húsfreyja, f. 23. júlí 1801 á Brekkum í Mýrdal, d. 6. janúar 1883 á Ketilsstöðum, Sveinsdóttir bónda, síðast í Hryggjum í Álftaveri, f. 1758, d. 20. október 1838 á Skeiðflöt í Mýrdal, Eyjólfssonar, og konu Sveins í Hryggjum, Guðrúnar húsfreyju, f. 1760 í Kálfholti í Holtum, d. 7. júlí 1834 á Skeiðflöt, Þórðardóttur prests í Kálfholti Sveinssonar, og konu sr. Þórðar, Guðfinnu Þorsteinsdóttur, síðar á Felli í Mýrdal.

Móðir Guðrúnar og síðari kona Hjálmars var Kristín húsfreyja, f. 25. nóvember 1839, d. 1. febrúar 1925, Sveinsdóttir bónda á Syðstu-Grund u. Eyjafjöllum, f. 12. október 1816, d. 12. febrúar 1898, Pálmasonar bónda og smiðs í Álftagróf í Mýrdal, f. 9. september 1798, d. 14. júní 1876, Jónssonar og barnsmóður Pálma, Ástríðar Einarsdóttur, f. 9. apríl 1792, d. 22. desember 1868.

Móðir Kristínar húsfreyju og kona Sveins á Syðstu-Grund var Gyðríður húsfreyja, f. 20. október 1811, d. 25. nóvember 1859, Bjarnadóttir bónda á Syðri-Grund og í Ásólfsskála, f. 1759, d. 28. febrúar 1834, Vigfússonar, og konu Bjarna Kristínar húsfreyju, f. 1765, Jónsdóttur.

I. Börn Hjálmars Eiríkssonar og Guðrúnar Jónsdóttur fyrri konu hans í Eyjum:
1. Eiríkur Hjálmarsson kennari á Vegamótum.
2. Þórunn Hjálmarsdóttir húskona á Lágafelli, fyrr húsfreyja á Ljótarstöðum, kona Sigurðar Sigurðssonar bónda þar.
3. Þorgerður í Dölum húsfreyja í Dölum, kona Jóns Gunnsteinssonar.
II. Börn Hjálmars Eiríkssonar og Kristínar Sveinsdóttur síðari konu hans:
4. Hjálmrún Hjálmarsdóttir vinnukona, síðar ráðskona í Reykjavík, f. 16. mars 1878, d. 9. mars 1950.
5. Guðrún Hjálmarsdóttir húsfreyja á Akri, kona Guðmundar Þórðarsonar.
6. Helgi Hjálmarsson, – að Hamri. Konur hans voru Guðbjörg Vigdís Guðmundsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir.
III. Barn Hjálmars Eiríkssonar og Ingibjargar Gísladóttur, síðar húsfreyju í Oddakoti í A-Landeyjum:
6. Sigurbjörg Hjálmarsdóttir húsfreyja í Oddhól, kona Ólafs Guðmundssonar.
IV. Hálfsystir Hjálmars á Ketilsstöðum og í Efri-Rotum og föðursystir þessarra Hjálmarsbarna var
7. Sigríður Eiríksdóttir langamma Árna Árnasonar símritara og þeirra systkina og amma Kristins Sigurðssonar á Eystri-Löndum.

Hjálmrún var með foreldrum sínum í efri-Rotum 1880, var 12 ára tökustúlka hjá Eiríki bróður sínum og Sigurbjörgu í Nýja-Kastala, (síðar Vegamót) 1890, var vinnukona hjá Gísla Hjálmarssyni og Hildi konu hans í Gíslahúsi í Norðfirði 1901.
Hún kom til Eyja frá Norðfirði 1905 og var vinnukona á Vegamótum 1906 og 1907, var lausakona í Bræðraborg 1909.
Hjálmrún fluttist til Reykjavíkur 1910, var vinnukona á Klapparstíg 20 hjá fyrri húsbændum frá Norðfirði á því ári.
Hún giftist Sigurði Sigmundssyni frá Kotströnd í Ölfusi 1909, á Bræðraborgarstíg 38 og bjó þar við andlát 1950.

I. Maður Hjálmrúnar, (16. júní 1909), var Sigurður Sigmundsson verkamaður frá Kotströnd í Ölfusi, f. þar 2. október 1878, d. 30. október 1941. Foreldrar hans voru Sigmundur Einarsson bóndi, f. 28. apríl 1837 í Hvammi í Ölfusi, d. 5. nóvember 1882 á Kotströnd, og Steinvör Jónsdóttir húsfreyja, f. 11. október 1843 í Alviðru í Ölfusi, d. 23. apríl 1902 á Þurá þar.
Barn þeirra:
1. Gísli Jóhann Sigurðsson rafvirkjameistari, stofnandi og eigandi Raforku, f. 8. nóvember 1913, d. 25. apríl 2005. Kona hans Svana Eyjólfsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Garður.is.
  • Íslendingabók.is.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.