Hjálmfríður Hjálmarsdóttir (Bólstaðarhlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. september 2018 kl. 11:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. september 2018 kl. 11:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Hjálmfríður Ragnheiður Sigurbjörg Hjálmarsdóttir''' frá Gjögri í Strandas., húsfreyja fæddist þar 18. mars 1896 og lést 15. júlí 1973.<br> Foreldrar hennar voru Hj...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hjálmfríður Ragnheiður Sigurbjörg Hjálmarsdóttir frá Gjögri í Strandas., húsfreyja fæddist þar 18. mars 1896 og lést 15. júlí 1973.
Foreldrar hennar voru Hjálmar Guðmundsson sjómaður, f. 3. september 1862, d. 22. júni 1949, og kona hans Lilja Þorbergsdóttir húsfreyja, f. 12. september 1861, d. 22. júlí 1925.

Hjálmfríður var með foreldrum sínum í Reykjanesbúð í Reykjarfirði 1901, í Hjálmarshúsi þar 1910.
Þau Þorleifur giftu sig 1917 og bjuggu í Hjálmarshúsi 1920, eignuðust fjögur börn og tóku að sér tvö börn til fósturs.
Hjálmfríður og Þorleifur fluttust að Litlanesi innan við Gjögur á þriðja áratugnum og bjuggu þar, lifðu af búskap og sjósókn.
Þau fluttust að Bólstaðarhlíð 1959, áttu þá þrjú börn í Eyjum og annað fósturbarna þeirra, Auðunn, fluttist þá til Eyja.
Þorleifur lést 1964. Hjálmfríður lenti hinsvegar í Gosinu. Hún lést í lok Gossins í júlí 1973, jarðsett í Reykjavík.

Maður Hjálmfríðar, (18. mars 1917), var Þorleifur Friðrik Friðriksson frá Kjörvogi við Reykjarfjörð, bóndi, sjómaður, fiskverkamaður í Litlanesi í Reykjarfirði, f. 8. september 1891, d. 12. október 1964.
Börn Hjálmfríðar og Þorleifs:
1. Lilja Þorleifsdóttir húsfreyja, f. 17. júní 1922, d. 4. september 2008.
2. Ingibjörg Þorleifsdóttir húsfreyja á Akranesi og í Garðabæ, f. 5. september 1924, d. 28. maí 2018.
3. Klara Þorleifsdóttir vinnukona, fiskverkakona, starfsmaður á sjúkrahúsi, f. 25. júlí 1926, d. 30. janúar 2011.
4. Hjálmar Þorleifsson rafvirkjameistari, f. 15. desember 1927, d. 22. janúar 2011.
Fósturbörn Þorleifs og Hjálmfríðar voru:
5. Sigrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 28. júní 1915, síðast í Reykjavík, d. 26. ágúst 1998. Hún var systurdóttir Hjálmfríðar.
6. Auðunn Hafnfjörð Jónsson matsveinn, kjötiðnaðarmaður, f. 24. desember 1936 á Gjögri, d. 9. september 2007.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.