Hjálmfríður Björg Ísaksdóttir (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. febrúar 2016 kl. 21:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. febrúar 2016 kl. 21:39 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hjálmfríður Björg Ísaksdóttir frá Norðurgarði húsfreyja í Björgvin og á Bergstöðum og Litla-Hrauni, fæddist 4. október 1865 og lést 13. maí 1953.
Foreldrar hennar voru Ísak Jakob Jónsson bóndi í Norðurgarði f. 20. janúar 1833, d. 9. apríl 1899, og kona hans Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja f. 1833, d. 30. ágúst 1906.

Björg var 4 ára með móður sinni í Grímshjalli 1870 og 1880, vinnukona í Pétursborg 1881, með móður sinni í Godthaabsfjósi 1882-1885 og foreldrum sínum þar 1886 og aftur með móður sinni þar 1887, vinnukona í Jónshúsi 1888.
Hún var vinnukona í Nýja-Kastala 1889 og þar var Elís vinnumaður. Hún var bústýra unnusta síns Elísar í Elínarhúsi 1890 með barn þeirra Jóhönnu Gíslínu á fyrsta ári. Þau voru í húsfólk í Ísakshúsi 1891 og enn 1895. Elín Björg fæddist þeim 1894.
Þau byggðu Björgvin 1899 og bjuggu þar til 1903. Þá byggðu þau Bergstaði og bjuggu þar til ársins 1910, en 1911 var Björg vinnukona á Vilborgarstöðum.
Þau byggðu Litla-Hraun í byrjun annars áratugar aldarinnar. Þar dó Elís 1916.
Björg bjó á Litla-Hrauni 1920, fluttist til Reykjavíkur 1922 með Jóhann Elínberg.
Hún lést 1953 á Elliheimilinu Grund í Reykjavík.

Maður Bjargar, (30. október 1891), var Elís Sæmundsson smiður í Björgvin og á Bergstöðum, f. 8. mars 1860, d. 27. desember 1916.
Börn þeirra voru:
1. Jóhanna Gíslína Elísdóttir, f. 5. ágúst 1890, d. 18. maí 1917.
2. Elín Björg Elísdóttir, f. 11. júlí 1894, fór til Reykjavíkur 1905, dó þar á St. Jósefs spítala (Landakotsspítala) 5. september 1905..
3. Jónína Guðrún Elísdóttir, f. 14. júlí 1897, d. 24. desember 1966.
4. Petrína Margrét Elísdóttir, f. 13. ágúst 1904, d. 29. júní 1980.
5. Jóhann Elínbergur Elísson, f. 18. júní 1908, d. 3. febrúar 1974.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.