Hjálmar Eiríksson (Vegamótum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. ágúst 2013 kl. 15:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. ágúst 2013 kl. 15:24 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Hjálmar

Hjálmar Eiríksson verslunarstjóri frá Vegamótum fæddist 25. janúar 1900 og lést 18. ágúst 1940. Hann var sonur hjónanna Eiríks Hjálmarssonar og Sigurbjargar Pétursdóttur.

Eiginkona hans var Jóna Kristinsdóttir ljósmóðir. Þau bjuggu að Faxastíg 2b.

Frekari umfjöllun

Hjálmar Eiríksson skrifstofumaður frá Vegamótum, fæddist 25. janúar 1900 og lést 18. ágúst 1940.
Hann var sonur Eiríks barnakennara á Vegamótum, f. 11. ágúst 1856, d. 5. apríl 1931, Hjálmarssonar bónda í Efri-Rotum undir Eyjafjöllum, f. um 1820, d. 1904, Eiríkssonar, og konu Eiríks kennara, Sigurbjargar Rannveigar Pétursdóttur, f. 25. nóvember 1864, d. 28. október 1946, af Suðurnesjum, Ólafssonar.
Föðursystkini Hjálmars voru m.a. þessi:
Þorgerður í Dölum, kona Jóns Gunnsteinssonar.
Helgi Hjálmarsson, – að Hamri hér.
Sigurbjörg Hjálmarsdóttir, kona Ólafs Guðmundssonar í Oddhól.
Guðrún Hjálmarsdóttir á Akri, kona Guðmundar Þórðarsonar.

Kona Hjálmars var Jóna Kristinsdóttir ljósmóðir ættuð af Norðurlandi, f. 21. desember 1895, d. 27. október 1975.
Börn Hjálmars og Jónu:
1. Eiríkur skrifstofustjóri, f. 4. júlí 1924, d. 5. september 1971, kvæntur Hlíf Erlendsdóttur frá Keflavík.
2. Sigurbjörg deildarritari, f. 2. apríl 1923, d. 1. maí 2010, gift Viggó Einarssyni flugvirkja.
3. Helga Ágústa aðalgjaldkeri á skrifstofu Ríkisspítalanna, f. 2. júlí 1927, d. 7. júlí 2004, gift Árna Friðjónssyni skrifstofumanni.
4. Anna skrifstofumaður í Hafnarfirði, f. 16. desember 1929, gift Kristleifi Einarssyni eftirlitsmanni hjá Íslenzka Álfélaginu í Straumsvík.
5. Ása gjaldkeri hjá Áfengis- og tóbaksverzlun Ríkisins, f. 4. maí 1931, d. 1. mars 2011, gift Hauki Ingimarssyni bifreiðasmið.
5. Fríða Kristbjörg læknaritari á Landspítalanum, f. 4. febrúar 1935, gift (skildu) Birgi Matthíasi Indriðasyni matsveini í Reykjavík.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Hjálmar sálugi, í þrem orðum sagt, var hvers manns hugljúfi. Hann var maður í hærra lagi, ljóshærður og bjartur yfirlitum, en beinaber og magur í andliti. Hann hafði ljósblá augu og hreinan svip. Hann var herðabreiður og niðurmjór sem títt er um sterka menn, lipur í öllum hreyfingum og snar og fylginn sér. Hann var söngvinn vel og músíkfróður og spilaði mæta vel á mörg hljóðfæri.
Aðallífsstarf Hjálmars voru skrifstofustörf hjá ýmsum fyrirtækjum, en lengst var hann hjá Hf. Fram.
Hjálmar var ágætur lundaveiðimaður og mjög góður félagi, enda eftirsóttur í úteyjafélög vegna þessara mannkosta. Hann var í Álsey, Suðurey og Bjarnarey, - hvers manns hugljúfi.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir

Myndir