Hilmar Rósmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. janúar 2008 kl. 16:22 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. janúar 2008 kl. 16:22 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Hilmar Rósmundsson.

Hilmar Rósmundsson, skipstjóri, var varaþingmaður af lista Framsóknarflokksins í Suðurlandskjördæmi árið 1978. Tók sæti á Alþingi á haustþinginu það ár. Fæddur á Siglufirði 16. október 1925. Foreldrar hans voru Rósmundur Guðnason, Jónssonar bónda að Heiði í Sléttuhlíð og kona hans María Jóhannsdóttir, Þorsteinssonar í Stórugröf í Skagafirði. Hilmar kvæntist (24. október 1950) Rósu Snorradóttur (fædd 3. september 1927) Guðmundssonar. Þau slitu samvisum. Hilmar og Rósa eignuðust tvær dætur, Hafdísi Björg Hilmarsdóttur og Sædísi Maríu Hilmarsdóttur. Barnabörn Hilmars eru sex.

Hilmar lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum á Ísafirði og fiskimannaprófi hinu meira frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1950. Hann var skipstjóri á fiskiskipum frá 1955 og útgerðarmaður frá 1959. Átti auk þess sæti í stjórn Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi í Vestmannaeyjum og Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja og var einnig í stjórn Norðlendingafélagsins í Eyjum.

Árið 1960 fór Hilmar í útgerð með Theodóri Snorra Ólafssyni sem þá var mágur hans. Keyptu þeir Sigrúnu sem var 50 tonn og nefndu bátinn Sæbjörgu. Bátinn misstu þeir haustið 1964, þegar óstöðvandi leki kom að honum í róðri. Þrátt fyrir erfiðleika keyptu þeir bátinn Sigurfara frá Akranesi. Var hann einnig nefndur Sæbjörg.

Hilmar var Fiskikóngur Vestmannaeyja árin 1967 og 1968 með um 1000 lestir fyrra árið og 1191 skipslest það síðara. Árið 1969 var Sæbjörg aflahæsti bátur landsins með 1655 tonn. Þetta veiddist á Sæbjörgu. Á meðan Sæbjörg var í útgerð fiskaðist 101.910 tonn, á þremur bátum.


Heimildir